fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Kosningafjárlögin. Þá getum við borið saman við það sem var boðið upp á í fjárlögunum í desember síðastliðnum sem voru samþykkt fyrir 2026. Hækka útgjöld um 143 milljarða. Hin svokölluðu kosningafjárlög hv. þm. Dags B. Eggertssonar — mig minnir að það hafi verið 70 milljarðar. Þau voru nú ekki meiri kosningafjárlög en það. Það tvöfaldaðist milli ára. Ég hef haft mikinn áhuga á þessum málflutningi Samfylkingarinnar á undanförnum misserum sem snýr að hallarekstri ríkisins. Það er rétt að hafa í huga að 2016, 2017, 2018, var afgangur á ríkissjóði. Í fjárlögunum fyrir 2019 var afgangur á ríkissjóði en við vitum að WOW varð gjaldþrota í mars 2019. Þetta þekkjum við. Svo þekkjum við auðvitað líka heimsfaraldurinn, stríðið í Úkraínu og Reykjaneseldana. Þessi tala upp á 830 milljarða halla, þá væri fróðlegt að vita, ég skil þetta ekki alveg, hvort það sé verið að taka 2025 og 2026 inn í þessar tölur, tíma núverandi ríkisstjórnar. (Forseti hringir.) Það eru 626 milljarðar sem falla á árin 2019–2024. Þetta eru bara einfaldar afleiðingar af þeim áföllum sem íslenskt samfélag varð fyrir á þessum árum og það samhengi hluta. (Forseti hringir.) Þess vegna verður fólk náttúrlega að fara (Forseti hringir.) að hætta hér í þingsal að tala um þessa hluti með þessum hætti sem er boðið upp á hér.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörkin sem eru einungis ein mínúta þegar svo margir eru í andsvörum.)