157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:24]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þetta andsvar. Við erum auðvitað svolítið í sagnfræði en hún getur alveg verið gagnleg og áhugaverð. Ég er nú bara að vísa í þær tölur sem birtast í áætluninni, greinargerð og kynningu fjármálaráðherra á henni. Ef það eru einhverjar spurningar varðandi þessar tölur þá getum við bara kallað eftir svörum við því í meðförum nefndarinnar. En ég veit ekki betur en að hér sé farið rétt með. Ég held að hugsanlega hafi tölurnar verið færðar upp miðað við núverandi verðlag, ætli það skýri ekki að þær kallist ekki alveg á við einhverjar eldri tölur sem einhver er að miða við.