fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Í sambandi við hallareksturinn og hvað hefur gengið yfir þetta samfélag á síðustu árum þá er ágætismynd á bls. 19 í þingsályktunartillögunni sem snýr að því. En vandamálið kannski í þessari umræðu er að við höfum ekki fengið gögnin frá fjármálaráðuneytinu sem hefur verið óskað eftir. Það er vandamál í þessari umræðu hér og þetta hefur verið margítrekað og var rætt í byrjun þessa þingfundar. Svo er það ekki í samræmi við ríkisreikning, það er líka önnur breyta sem þarf að taka fyrir. Síðan er það áhugavert líka og rétt að hafa í huga mikilvægi þess að verðbólga á Íslandi á tímabilinu fyrir heimsfaraldurinn, í fimm, sex ár þar á undan, var að meðaltali 2,4%. Það hefur náðst gríðarlegur árangur eins og kemur fram í plagginu um þingsályktunartillöguna að þær umbreytingar sem hafa orðið í ríkisfjármálum á síðustu tíu, fimmtán árum, hafa ýtt undir betri forsendur fyrir góðum rekstri á ríkissjóði. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður kom aðeins inn á sagnfræðina, tökum hana líka aðeins nær. Hvaða árangri er hægt að ná miðað við þær forsendur sem við búum við í dag og það atvinnuleysi sem við búum við í dag?