fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil nú þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni, nefndarmanni í fjárlaganefnd, þar sem hann situr með mér. Hann ræddi fjármálaráð mikið og við munum auðvitað fara yfir þessa álitsgerð fjármálaráðs strax á morgun á fundi fjárlaganefndar. Hann gerir sér mat úr því að fjármálaráðherra hafi skipað fjármálaráð en samt sem áður hafi komið svona hörð álitsgerð. Það skiptir alla vega þá sem hér stendur máli að fjármálaráð sé óháð, að það sé ekki að vinna eftir skipunum frá fjármálaráðherra. Ég hefði haldið að það væri góðs viti að fjármálaráð væri óháð í sínum störfum. Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hann sé ekki sammála þeirri skoðun minni að það sé gott og það sé sjálfstætt í sínum störfum. Það myndi ég telja vera gott.
Mig langar líka að ræða aðeins við þingmanninn. Hann segir að fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytinu hafi mistekist að ná tökum á fjármálum ríkissjóðs. Ég velti svolítið fyrir mér hvort við höfum hreinlega verið að lesa sama gagnið. Þar kemur skýrt fram að uppsafnaður halli ríkissjóðs frá 2018 sé 830 milljarðar. Við erum að tala um að skila hallalausum fjárlögum á næsta ári. Er hann ekki sammála því að þetta sé töluvert mikill árangur? Ég myndi ekki telja að það sé að ná ekki tökum á fjármálum ríkisins þegar niðurstöðurnar eru með þessum hætti.