157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:41]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir hennar andsvar. Í fyrsta lagi skipun fjármálaráðs. Ég var einungis að tala um hvernig á skipuninni stendur og hvernig þetta ráð er skipað, þ.e. af ráðherra sjálfum, skipað af hinum skástu mönnum til að fara yfir fjármál ríkisins. Þetta voru ekki mínar hugleiðingar sem ég var hér oft og tíðum að lýsa í minni ræðu heldur raunverulega úr álitsgerð fjármálaráðs. Það var það sem ég var að benda á, ég var ekki að vísa í einhverja sem hefðu hugsanlega ákveðnar pólitískar skoðanir á þessu heldur hlutlausan aðila eins og fjármálaráð. Það var það sem ég var að benda á þegar ég var að tala um það hvernig þetta væri skipað til að gefa minni ræðu aukið vægi, þ.e. þessa ádeilu sem kemur klárlega fram í álitsgerð þess.

Varðandi hallann þá kemur það fram í álitsgerð fjármálaráðs — ég gæti nú fundið það — þar sem er vikið einmitt að þessum halla ríkissjóðs sem er snúið við á næsta ári og verður alltaf í plús út áætlunina. Það einmitt finnur að því að þetta svigrúm sem þarna skapast sé ekki notað til að borga niður skuldir heldur sé farið í útgjöld. Þennan texta er að finna í álitsgerð þess. Það bendir frekar á að þennan slaka, sem næst hugsanlega, eigi að nota til að greiða niður skuldir en ekki bara til að fóðra útgjöldin áfram, eins og þessi ríkisstjórn hefur svo mikið verið að vinna að. Þessum halla sem þarna er snúið við um einhver núll komma eitthvað prósent, hvort það sé 0,5% eða eitthvað minna, og út áætlun núna. Þetta er þetta er brotabrotabrot.