157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:43]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við getum auðvitað deilt um það hvað sé árangur og hvað ekki. Fyrir þá sem hér stendur er það merki um mikinn árangur að snúa 830 milljarða kr. halla síðustu ára við og skila jákvæðum ríkissjóði. Það kemur fram í fjármálaáætlun að það verði 80 millj. kr. afgangur næstu fimm árin og ég held að þetta skipti mjög miklu máli. Það hefur líka verið gert lítið úr þessu og sagt að aðgerðirnar sem boðaðar eru séu ekki nógu harðar. En ef ekki væri gripið til þeirra hagræðingaraðgerða sem nefndar eru í fjármálaáætlun — mér fannst nú hv. þingmaður gera því skóna að þetta væri ekki nógu vel útfært og að það leiddi að einhverju leyti til þess sem kemur fram í álitsgerð fjármálaráðs — og ef ekkert væri gert þá væri halli á ríkissjóði 52 milljarðar í lok áætlunarinnar. Þannig að það skiptir máli að gripið sé til þessara aðgerða. Ég vona að þingmaðurinn sé sammála um að það skipti máli að grípa til þessara aðgerða. Þær eru að sjálfsögðu ekki sársaukalausar. Það er verið að tala um að fækka ríkisstarfsmönnum um 1% á tímabilinu og mikið af því er bara með sameiningu stofnana og öðrum leiðum.

Hann var ansi harðorður þegar hann nefndi hér að stöðugleikareglan væri brostin og tengdi það við álitsgerð fjármálaráðs. Ég held að fjármálaráð hafi ekki sagt það í umsögn sinni — af því ég er með hana hérna fyrir framan mig. Í fyrra var fjármálaráð mjög ánægt með stöðugleikaregluna en bendir núna á að framkvæmd stöðugleikareglu sé ógagnsæ og óljóst hvernig hún stuðli að jafnvægi í afkomu. Það er langt frá því að hún sé brostin. Hún tók gildi í fyrra og það er bara komin lítil reynsla á hana. (Forseti hringir.) Það er það sem ég myndi kannski vilja fá þingmanninn til að reifa aðeins með mér: Telur hann virkilega að stöðugleikareglan sé brostin?