157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:08]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Eins og kemur fram í fjármálaáætluninni þá er hugsað út frá því að það sé ekki skattaaukning í þessu heldur að vöxtur útgjalda verði minni heldur en hagvöxtur. Það er það sem stefnt er að. Við treystum á að hlutirnir gangi okkur í haginn, að það verði hér framleiðniaukning og að hlutirnir, hvað skal segja, verði með jákvæðum hætti og við náum árangri í aðhaldi. Það er talað um að ríkisstarfsmönnum verði fækkað um 1–2% á ári. Þetta eru allt markmið sem á að vera hægt að ná fram, ég tala nú ekki um, frú forseti, ef við náum góðu samstarfi með stjórnarandstöðunni um að ná markmiðum þessarar góðu áætlunar. Ég skora einmitt á hv. þingmenn Miðflokksins að taka þátt í því með okkur.