157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:10]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Eins og ég nefndi í ræðu minni þá eru þetta breiðu línurnar í fjármálaáætluninni. Hugmyndin er sú að þetta sé leiðarljós í þeirri ferð sem við erum að fara og það tel ég vera meginmálið. Hér er ekki verið að tala um það hvort það sé hækkað um tíkall eða fimmkall eitthvert gjald, þannig að það sé á tæru, heldur erum við hér með ákveðin markmið og leið sem gengur út á það að auka tekjur samfélagsins og að skatthlutfallið hækki ekki heldur að við munum ná niður skuldahlutfalli. Ég tel einmitt að það séu miklir möguleikar í því, miklir möguleikar í þessum stóra rekstri, í útgjöldum ríkisins, á því að hægt sé að ná bæði fram hagræðingu og betri rekstri ef við stöndum saman að því.