157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:13]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Hef ég áhyggjur? Ég er bara þakklátur fjármálaráði að koma með ábendingar. Auðvitað eigum við að þakka fyrir gagnrýni ef hún er rökstudd og taka tillit til hennar. Hv. þingmaður telur aðhaldsstigið of lítið, mér finnst betra að setja raunhæf markmið og ná þeim, hafa tröppuna ekki of háa, heldur að ná þeim markmiðum sem koma fram. Ef við náum þeim markmiðum sem koma fram í áætluninni þá getum við bara verið jákvæð og ánægð og það væri ánægjulegt að heyra það hjá hv. þingmanni. Er hann ekki sammála því að ef þessi fjármálaáætlun nær fram að ganga sé það bara eitthvað sem við getum glaðst yfir? Og þó svo að honum finnist skrefin kannski ekki nógu stór, ef þau eru liður í því að við náum þessum árangri, er það þá ekki eitthvað sem við getum glaðst yfir saman?