fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þessi umræða hérna er ekki einhver kærleikssöngur. Við getum tekið það bara seinna, það er allt í lagi, en við erum að ræða hér efnislega um þessa fjármálaáætlun og hv. þingmaður svarar engu efnislega. Það er búið að spyrja hann um skattana, ég spurði hann um kjaragliðnunina, ég spurði hann um aðhaldsstigið og þær ábendingar sem komu frá fjármálaráði. Jú, jú, við skulum vera þakklát fjármálaráði, þau vinna við að koma með faglegt álit en hér eru mjög alvarlegar athugasemdir og ef við ætlum að ná þessum markmiðum — sem hefur ekki gengið hjá þessari ríkisstjórn á þessum stutta tíma eins og m.a. var bent á í álitsgerð fjármálaráðs. Þegar menn fóru af stað með fjárlögin síðast átti einungis að vera 0,9% aukning en hún varð síðan 2%. Stöðugleikareglan hangir á einhverjum nokkrum milljónum. Við verðum að ræða þetta efnislega. Ætlar hv. þingmaður ekki að svara neinu efnislega sem hann er spurður að hérna? Hv. þingmaður er formaður hv. fjárlaganefndar.