fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Hér er spurt um kjaragliðnunina og það er alveg ljóst að það að tryggja kjör lífeyrisþega, hvort sem það eru eldri borgarar eða öryrkjar, virðist einhverra hluta vegna vera eitur í beinum Sjálfstæðisflokksins og menn mikla hér mjög að það eigi að vera tryggt því þetta er auðvitað framvirk aðgerð. Það virðist vera eitur í beinum Sjálfstæðisflokksins. Það vekur mann aðeins til umhugsunar um hver stefna Sjálfstæðisflokksins er. Það er bara að selja allt steini léttara, hvort sem það er flugstöðin eða Landsbankinn eða Landsvirkjun, það virðist vera stefnan. (Gripið fram í.) Síðan er það alveg ljóst að þegar kemur að öryrkjum þá eru menn tilbúnir að ýkja það, allar þær mögulegu kjarabætur sem hljótast af þessu. Það er mjög undarlegt, frú forseti, og ég lýsi yfir áhyggjum af stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessum málum. (GÞÞ: Ég er bara að spyrja um álitsgerðina. Hv. þingmaður svarar engu.)