fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir hans ræðu. Hann hefur tök á að svara bara í andsvörum við mig þeim fyrri spurningum sem hafa komið fram varðandi álit fjármálaráðs og það sem sagt er um kjaragliðnun, að hún sé ekki til staðar. Fjármálaráð bendir á það í sínu áliti. Síðan aftur það sem komið var inn á varðandi launavísitöluna og almannatryggingar sem fjármálaráð gerir alvarlegar athugasemdir við í sinni umsögn við fjármálaáætlun og gerði það reyndar líka í fyrra. Ég vil spyrja hv. þingmann, sem er líka formaður fjárlaganefndar, bara persónulega um hans afstöðu til þessara mála og umsögn fjármálaráðs um þessi atriði vegna þess að það sem snýr að launavísitölu og almannatryggingum er alltumlykjandi í áliti fjármálaráðs.