157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:19]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Þessar athugasemdir hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins eru hálfáráttukenndar, tel ég vera. Þegar kemur að þessum þætti sem snýr að kjarabótum til lífeyrisþega virðast menn sjá algjörlega ofsjónum yfir þessu. Ég vil bara vekja athygli hv. þingmanns á því að ef það er engin kjaragliðnun, vegna þess að þetta er framvirk aðgerð, þá verður ekki þessi leiðrétting sem hann hefur svona miklar áhyggjur af. Þetta tel ég vera mjög mikilvægt fyrir jafnvel geðheilsu hv. þingmanna sem virðast vera farnir á taugum yfir því að öryrkjar og aldraðir muni eitthvað hækka í kjörum. Það er alveg ljóst (Gripið fram í.) að ef það er engin kjaragliðnun þá mun ekki verða þessi leiðrétting sem þeir hafa svo miklar áhyggjur af.