157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:22]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla að fá að byrja á því að vera ósammála samflokksmanni mínum, Njáli Trausta Friðbertssyni. Geðheilsa allra hér inni er ekki í góðu lagi því að hún tekur væna dýfu hjá þeim sem hér stendur nánast í hvert einasta skipti sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson tekur til máls, þvílíka argavitleysan sem kemur hér fram trekk í trekk. Ég ætla bara að lýsa því yfir að ég hef stórfelldar áhyggjur af því að hv. þingmaður sé formaður fjárlaganefndar miðað við hvað hann segir hér. Það stendur varla steinn yfir steini. Ræðan hjá hv. þingmanni var um margt ágæt en svo þegar það fara að dúndrast einhverjar spurningar yfir hann verður þetta bara vitleysa á vitleysu ofan. Hann segir 1–2%. Það er 1% sem á að fækka ríkisstarfsmönnum um. Svo er verið að tala um þessa launavísitölu, þetta sé bara gott mál eins og alltaf, bara gott mál. Þetta er auðvitað alls ekki gott mál. Orðin sem eru notuð í áliti fjármálaráðs um þetta eru, með leyfi forseta, „víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar“. Það er „forsendubrestur“ í fjármálaáætlun að hafa sett 15% af 31% heildarútgjalda á sjálfstýringu. (Forseti hringir.) Er það ekki lágmark að hv. þingmaður og formaður fjárlaganefndar (Forseti hringir.) sé með svona risatölur á hreinu og bulli ekki hér í beinni útsendingu fyrir land og þjóð?