157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:24]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst miður að hafa misboðið þingmanninum og ég vona að hann sé ekki sár eftir mínar ræður. En eins og ég nefndi hér tel ég að fjármálaráð hafi komið með sínar ábendingar og ég tek þeim fagnandi; það verður auðvitað farið yfir þær í fjárlaganefnd og það er ekkert meira um það að segja. En ég vil fá að ítreka hér, vegna þess að ég heyri að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru mjög í uppnámi yfir því að með samþykkt þessarar framvirku breytingar á lögum sem mun tryggja að öryrkjar og ellilífeyrisþegar fái sambærileg kjör og aðrir landsmenn og það verði ekki kjaragliðnun — þessi hækkun mun þá fylgja (Forseti hringir.) þeim tekjum sem verða af skattstofni þeirra sem greiða skatta, þ.e. launþega og fleiri, þannig að þessar áhyggjur hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins eru óskiljanlegar og furðulegar.