fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og ekki minnkar vitleysan. Ég veit ekki, það er eins og að hlaupa á steypubíl að reyna að ræða við hv. þingmann um þessa launavísitölu. Þá langar mig að víkja að öðru en hv. þingmaður bað okkur og skoraði á okkur í stjórnarandstöðunni að taka bara þátt í þessu, vera svolítið jákvæð og hafa svolítið gaman þegar við ræðum þessa fjármálaáætlun, sama hversu harðort fjármálaráð er. Ég bara vona að það verði alger stemning og dúndrandi gítarspil og ég veit ekki hvað í fjárlaganefnd þegar þetta verður rætt. En ég ætla — af því að ég nenni ekki einu sinni að spyrja annarrar spurningar því að svörin eru náttúrlega engin — bara að skora á hv. formann fjárlaganefndar og stjórnarliða í ljósi allra þeirra varnaðarorða og varúðarorða sem komu fyrr fram í fjárlagavinnunni og í ljósi þess hvað fjárlagaráð segir um þessa fjármálaáætlun: Ef þau ætla að skora á okkur stjórnarandstöðuna (Forseti hringir.) að vera svolítið jákvæð og skemmtileg þá ætla ég bara að skora á hv. formann fjárlaganefndar og stjórnarliða að taka kannski tappann úr eyrunum svona einu sinni og fylgja stundum einhverjum ráðleggingum.