157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:39]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að þakka þingmanninum fyrir sína ágætu ræðu. Undir henni var ég nú farin að vorkenna hv. þingmanni fyrir allar þessar áhyggjur sem hann hefur sem eru mjög margar og miklar. Hann hefur miklar áhyggjur af óvissunni og það er nú þannig að ef maður getur verið viss um eitthvað þá er það að það er óvissa. Þess vegna skiptir gríðarlega miklu máli að byggja upp sterkan ríkissjóð af því að það sem við vitum er að það munu koma upp áföll og það skiptir máli að við byggjum upp ríkissjóð þannig að hann þoli áföll.

Nú veit ég að hv. þingmaður er fyrrverandi formaður fjárlaganefndar og er búinn að vera hér í mörg ár og mig langar að spyrja hann hvort óvissan núna sé eitthvað meiri heldur en hún hefur verið. Nú þekkjum við bæði ástandið erlendis en hann nefndi það ekki í sinni ræðu, hann hafði meiri áhyggjur af verðbólgu, vaxtastigi og kjarasamningum. Mig langar því að spyrja hann hvort óvissan núna sé eitthvað meiri en hún hefur verið síðustu ár. Við höfðum Reykjaneselda og fleira þar sem við vissum ekkert hvað var að gerast og þá hefði ég haft verulegar áhyggjur af því hvert við værum að fara með ríkissjóð. Ef ég væri í hans sporum þá myndi ég jafnvel hafa einhverja ákveðna staðfestu af því að núna erum við hvorki með heimsfaraldur yfir okkur né Reykjaneselda. Ég myndi því halda að ástandið væri jafnvel örlítið betra þannig að við ættum allavega að geta sofið vel.