157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:43]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þingmaðurinn svaraði náttúrlega ekki spurningunni minni. Ég spurði hvort hann teldi óvissuna vera meiri núna heldur en undanfarin ár. Það var það sem ég spurði um og það væri ágætt ef ég gæti fengið svar við því. Mig langar í seinna andsvari aðeins að ræða við hann varðandi öll þessi gjöld af umferð sem ég held að við ættum líka að fara vel yfir í fjárlaganefnd. Það er ekkert nýtt að gerast þar annað en það sem áður var boðað. Hann nefndi réttilega að það sem er ekki inni í fjármálaáætlun er auðvitað það sem kemur inn í innviðafélagið. Ég vil þá spyrja þingmanninn, af því að við erum nú bæði í fjárlaganefnd, ég og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, og þar hefur verið rætt hvaða framkvæmdir eigi að fara inn í innviðafélagið: Er hann ekki sammála þeirri skoðun minni að þegar við tökum framlög til samgöngumála sem birtast í fjármálaáætlun plús þær framkvæmdir sem eru líka áætlaðar í innviðafélaginu, telur hann það ekki vera á pari við það sem við höfum ætlað? Hann talar hér um að framlög til samgöngumála hafi lækkað og það segir á bls. 34 í fjármálaáætlun að það skýrist fyrst og fremst af niðurfellingu tímabundinnar heimildar sem fékkst í fjárlögum yfirstandandi árs vegna vegaframkvæmda í tengslum við gerð Hvammsvirkjunar. Það var líka hárrétt sem þingmaðurinn nefndi að við bættum verulega í samgöngumálin í fjárlögum í fyrra og í fjárlögum ársins í ár. Þannig að ég skil ekki alveg hvert hann er að fara með þessum ummælum sínum um að við séum að skerða framlög til samgöngumála. Ég fæ ekki séð að þau eigi sér stoð í þessum áætlunum — ef hann gæti aðeins greint betur frá því.