fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir ræðuna. Mig langar til að spyrja um tvennt sem hv. þingmaður kom inn á. Annars vegar kom hv. þingmaður inn á mál er varðar frumjöfnuð og nefndi það réttilega að vextir falla utan þeirrar talningar, ef svo má segja. Nú er fyrirséð, ef ég man rétt, um 20 milljarða hækkun útgjalda vegna vaxtakostnaðar frá fyrsta ári tímabilsins til hins síðasta, sem sagt frá 2027–2031. Ef hv. þingmaður færi aðeins yfir afstöðu sína til þessa mikla aukna vaxtakostnaðar, tilurð hans og hvaða viðbrögð séu líklegust til árangurs í þeim efnum.
Hv. þingmaður nefndi hér að fjármálaáætlun eins og hún liggur fyrir væri undir viðmiðum stöðugleikareglunnar hvað útgjaldavöxt varðar og kom inn á tvö atriði er varða innsenda umsögn fjármálaráðs. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hver afstaða hans sé til sjónarmiða sem fjármálaráð setur fram í tengslum við þörf fyrir að lækka þakið sem stöðugleikareglan rammar inn með vísan í frumvarp um vísitölubindingu almannatrygginga sem var samþykkt hér fyrir stuttu.