157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:07]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég byrja á að þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir prýðisræðu. Þegar maður hefur verið að fjalla um vísitölu almannatrygginga í þinginu undanfarið ár þá hefur maður ekki orðið mjög mikið var við að þingmenn Viðreisnar hafi tekið þátt í umræðunni um það mál. Þá langar mig að spyrja — nú þegar við erum búin að fá umsögn fjármálaráðs í þessu máli og reyndar líka við fjármálaáætlun í fyrra, þá gerði fjármálaráð miklar athugasemdir við það mál, launavísitöluna á almannatryggingar — hver skoðun hv. þingmanns er á því máli og þeirri gagnrýni sem kemur fram hjá fjármálaráði varðandi sjálfbærni og sjálfstýringu og annað í þessu máli sem snýr að launavísitölunni. Það væri kannski efnislega áhugavert að fá fram. Við sjáum það alltumlykjandi í umsögn fjármálaráðs að verið er að tala um þetta einstaka mál, t.d. eins og í punktum tvö og þrjú. Þetta eru bara meðal helstu punkta þar sem segir, með leyfi forseta: „Sú víðtæka og sjálfvirka vísitölutenging almannatrygginga sem nú hefur verið fest í lög felur í sér mikla hættu á að misræmi myndist milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera með tilheyrandi áhrifum á verðstöðugleika, vinnumarkað og skuldastöðu ríkissjóðs. Fjármálaráð telur þetta áhættusama stefnumótun sem getur haft víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar fyrir sjálfbærni og festu opinberra fjármála.“ Við þekkjum einmitt í lögum um opinber fjármál áhersluna á sjálfbærni og festu. Þetta eru hornsteinar, tveir punktar af fimm sem eru mikið notaðir sem áhersluatriði í lögum um opinber fjármál. Það væri því áhugavert að heyra frá hv. þingmanni um þetta atriði.