157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:27]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Þótt hann sé ekki á staðnum vil ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir sína framsögu í þessu máli og vona að það sé allt í lagi að byrja á því að taka hjartanlega undir orð stórvinar míns og samflokksmanns í Sjálfstæðisflokknum, hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar, varðandi ræðutímann þótt það komi kannski minna við mig en þá menn og konur sem eru í t.d. fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd og eru með þessi mál inni á borði sínu allan daginn alla daga og hafa mikið að segja og ég held að það væri ekkert verra til að gera þessa umræðu betri og dýpri að meiri ræðutími væri í boði.

Að því sögðu, frú forseti, vil ég byrja á því að segja að það er fagnaðarefni að þrátt fyrir að við séum í mörgum málum á öndverðum meiði pólitískt, þrátt fyrir erfiðar efnahagslegar aðstæður, hækkandi vexti, stríðsátök í Mið-Austurlöndum og víðar, þrátt fyrir verðbólgu sem hefur reynst þrálátari en við öll vonuðumst til og þá sérstaklega ríkisstjórnin, er hæstv. ríkisstjórn að stefna að hallalausum fjárlögum árið 2027. Við þurfum að sjálfsögðu að geta fagnað þeim markmiðum og reynt að standa með ríkisstjórninni í því. Það er ekki spurning og það er líka mjög gott að með hallalausum fjárlögum er sömuleiðis stefnt að því að gera það án þess að snerta á grunninnviðunum, samanber heilbrigðismálum og löggæslu, svo eitthvað sé tiltekið. Við í stjórnarandstöðunni höfum aðeins verið beðin um að fagna bara með og gleðjast sem er alveg hægt ef þetta gengur upp. En það er að sjálfsögðu líka okkar skylda hér sem þingmanna í stjórnarandstöðunni að gjalda varhuga við því sem þarf að gera þar og velta upp þá sérstaklega umsögn fjármálaráðs um þessa fjármálaáætlun þar sem eru mörg stór orð notuð. Vanalega og kannski oft, frú forseti, erum það við í stjórnarandstöðunni sem kannski notum svolítið stór orð en ég hef ekki séð miklu stærri orð á þessu löggjafarþingi en komu frá fjármálaráði er varðar þessa fjármálaáætlun. Það eru nokkur atriði sem verður að tæpa á og verður mjög áhugavert að sjá og heyra hvað gerist í vinnu fjárlaganefndar varðandi þetta.

Frú forseti. Maður kannski byrjar bara beint á einni aðgerðinni sem maður tók eftir að hæstv. fjármálaráðherra benti strax á, svolítið Viðreisnarmál, um leið og það var kynnt að fækka ríkisstarfsmönnum um 1%. Besta mál, gott markmið, mjög gott markmið sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins geta svo sannarlega staðið með hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra í og er eitthvað sem Sjálfstæðisflokknum er mjög hugleikið og ef það verður eitthvað aðeins bjartari tíð hérna hinum megin við Vonarstrætið 16. maí held ég að það gæti farið að gerast þar líka. Það er svo sem annað mál. Þær sértæku hagræðingaraðgerðir sem talað er um og taldar upp í þessari áætlun, sér í lagi hvað varðar þetta, það vantar alveg hvernig útfærslurnar eru útskýrðar.

Frú forseti. Fjármálaráð segir um þetta — og ég er að benda á orð óháðrar nefndar um fjármálaáætlun — að þetta séu ógagnsæ og ótrúverðug markmið eins og þau eru sett upp núna. Það er að sjálfsögðu ótækt, eins og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson var að fara hér yfir hversu mikilvægt plagg þetta er, að þegar kemur að einu helsta markmiði í þessari fjármálaáætlun í hagræðingaraðgerðum sé það kallað ógagnsætt og ótrúverðugt. Það verður mjög, held ég, áhugavert fyrir nefndarmenn að vinna aðeins út úr þessu. Þetta er því miður eitt af fáum skiptum og fáum blaðsíðum af þeim mýmörgu blaðsíðum í umsögn fjármálaráðs þar sem svona stór orð eru notuð.

Frú forseti. Þegar sagt er að ríkisstjórnin vilji ná hallalausum fjárlögum þá er það rétt. En við þurfum líka að gangast við því hvað það þýðir í raun og veru. Afgangur ríkissjóðs árið 2027 er áætlaður 1.100 millj. kr., 1,1 milljarður. Þetta er á móti heildarútgjöldum sem nema um 2.000 milljörðum. Við erum að tala um svigrúm, við erum að tala um svigrúm í fjármálaáætlun sem jafngildir tæplega 0,02% af landsframleiðslu. Aftur verð ég að fá, með leyfi forseta, að vitna í fjármálaráð þegar það segir berum orðum í álitsgerð sinni að afkomubatinn sé ekki nægilega öflugur, nægilega trúverðugur né nægilega varfærinn. Það verður að segja að ráðið hefur einfaldlega rétt fyrir sér. Við þurfum ekki annað en að spyrja okkur hvað þurfi að gerast til þess að þetta litla svigrúm — sem er þó til og það er gott að markmiðið er þó þarna að vera með hallalaus fjárlög — er ekki mikið og við því verður að gangast. Þarf mikið til? Nei, það verður að segjast. Ef verðbólga hækkar lítið eitt, ókei, vissulega vorum við að ræða í gær bráðabirgðaaðgerðir til að ná henni niður en við vitum að hún mun fara aftur upp í september, október þótt eitthvað sé verið að reyna að gera til að mæta þessum skattahækkunum hingað til með skattalækkunum sem er vel. Ef hagvöxtur bregst, alþjóðlegar aðstæður versna við það að allt er í kaldakoli víðs vegar og við sjáum glöggt og höfum séð á síðustu mánuðum að hlutir úti í heimi geta breyst á mjög skömmum tíma. Það þarf svo lítið að gerast, frú forseti, til þess að þessir 1.100 milljónir, 1,1 milljarður, nái ekki að standa þótt ég enn og aftur endurtaki að ég fagni því markmiði að reyna að ná hallalausum fjárlögum.

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld og ég ætla þá að fá að víkja, frú forseti, að vísitölutengingu almannatrygginga, þessu verulega umdeilda frumvarpi sem, ja, var samþykkt. Við samþykktum það ekki en það var samþykkt af ríkisstjórninni fyrir ekki löngu síðan. Þetta er grafalvarlegt mál. Því miður verður maður að fá að taka svo djúpt í árinni. Þetta er mál sem var keyrt í gegn með svo augljósum og glórulausum pólitískum hrossakaupum ríkisstjórnarinnar til að friðþægja Flokk fólksins í komandi umræðu um Evrópusambandið. Það sjá þetta allir með tvö augu og þó að það væri bara eitt. Þetta bara er ekki í lagi því það var búið að segja öllum í ríkisstjórninni — og allt í lagi að hún hlusti ekki á stjórnarandstöðuna, það bara gerist inni í þessum sal að við hlustum ekkert á hvert annað, en hver einasti sérfræðingur sem kann á reiknivél fyrir utan þrjá, tveir af þeim sitja hérna almennt en ekki í dag og einn sat hér á árum áður, allir aðrir, ég endurtek: Allir aðrir bentu á að þetta væri glórulaust. Og hvað kemur á daginn í umsögn fjármálaráðs? Hér voru lögfest 31% af heildarútgjöldum ríkissjóðs, 15% af þeim eru nú komin á sjálfstýringu sem fjármálaráð segir að sé áhættusöm stefnumótun sem geti haft víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar hvað varðar fjármálin hér á landi.

Enn fremur segir fjármálaráð að kjaragliðnun, sem var notuð hér sérstaklega af þingmönnum Flokks fólksins í umræðu um þetta mál, sé bara einfaldlega ekki til. Þá spyr maður enn frekar: Um hvað vorum við að tala hér og þræta svona lengi? Og af hverju er maður að minnast á þetta? Jú, af því að ofan á það að það er búið að staðfesta í raun og veru endanlega með þessari umsögn fjármálaráðs hversu vont mál þetta er og hversu víðtæk áhrif það hefur þá er þetta líka fyrir hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra — sem neyddist til að koma hér upp í pontu og segja að hann styddi þetta mál með því einfalda orði já, mig minnir að hv. þm. Bergþór Ólason hafi hreinlega spurt hann beint út og hann gat ekki annað en sagt já, því þannig gerast kaupin á eyrinni — þá er þetta mál, þetta eina mál, með leyfi forseta, „forsendubrestur sem kalli á endurskoðun útgjaldaþaks stöðugleikareglu til lækkunar.“ Forsendubrestur í fjármálaáætlun, þetta eina mál sem við vorum hér að þræta um. Ég veit ekki hversu margir reyndu að vara hæstv. ríkisstjórn við.

Það er nokkuð ljóst að maður er ekki að fara að komast yfir allt, frú forseti, en ég ætla að fá að ljúka máli mínu með því að endurtaka það sem ég sagði hér í upphafi: Að sjálfsögðu styðja allir markmiðið um hallalaus fjárlög fyrir árið 2027. Það er fagnaðarefni að það sé verið að reyna að gera þetta þó að það standi tæpt. En markmiðið er rétt og það er gott. En við getum ekki látið markmiðið og einhverja von og beiðni ríkisstjórnarinnar um að við dönsum hér í takt hylja þá veikleika og þá staðreynd að það eru veikleikar í þessari áætlun, 1.100 milljónir eru of lítið svigrúm. Vonandi fyrir hæstv. ríkisstjórn þá mun þetta ganga upp. En það er alveg ljóst, frú forseti, að það er ýmislegt sem þarf að ræða nokkuð alvarlega þegar þetta mál fer til hv. fjárlaganefndar á milli fyrri og seinni umræðu.