157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:37]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Það sem blasir við í þessari fjármálaáætlun er ekki styrkur heldur veikleiki; veikleiki í forsendum, veikleiki í aga og veikleiki í trúverðugleika. Í fyrsta lagi byggir áætlunin á forsendum sem eru þegar farnar að bresta. Sjálft fjármálaráð bendir á að efnahagsforsendur hafi versnað. Samt er haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist. Markmið um hallalaus fjárlög eru sett fram. Vissulega styðjum við það en það eru skýrir fyrirvarar um að ýmsar forsendur þurfi að ganga eftir. Það er ekki bara stefna, það er mjög mikil von miðað við ástandið í dag. Í öðru lagi er sjálfbærni opinberra fjármála beinlínis sett í hættu. Víðtæk og sjálfvirk vísitölutenging almannatrygginga er sérstaklega nefnd sem áhættuþáttur sem getur skapað verulegt misræmi í ríkisfjármálum í ábendingum frá fjármálaráði. Með öðrum orðum: Útgjöldin geta farið úr böndunum án þess að stjórnvöld hafi raunverulega stjórn á þeim. Við þessu var varað ítrekað en eins og hefur margoft komið fram er ekkert hlustað og þess vegna stöndum við frammi fyrir því efnahagsástandi sem við stöndum frammi fyrir í dag.

Í þriðja lagi vantar aga og raunverulegt aðhald. Það er beinlínis sagt að til að ná markmiðunum þurfi aga í hagstjórn. Það eitt og sér er áfellisdómur því það gefur til kynna að agi sé ekki til staðar í dag. Nú er ég að vitna aftur í ummæli frá fjármálaráði sem ég held að flestir ættu að geta tekið mark á. Í fjórða lagi er skortur á skýrleika og framkvæmd. Áætlunin gerir ráð fyrir afgangi á hverju ári án þess að sýna með trúverðugum hætti hvernig eigi að ná honum. Það er einfaldlega ekki nóg að setja fram jákvæðar tölur á blaði ef leiðin þangað er óljós. Við höfum nú aldeilis fundið fyrir því hér í þessum þingsal að það þarf að toga einhver gögn á bak við þessar tölur út með töngum. Það hefur ekki gengið betur en svo að við fáum ekki megingögnin fyrr en eftir viku, held ég, þegar fyrri umræða um þetta mál er búin en þá kemur örugglega ýmislegt nýtt fram fyrir nefndirnar til að vinna með. Og loks: Þessi áætlun krefst þess að allt gangi upp, hagvöxtur, tekjur og aðhald, á sama tíma og við stöndum frammi fyrir meiri óvissu en áður.

Frú forseti. Þetta er ekki mjög traust fjármálaáætlun. Vissulega er stefnt að hallalausum fjárlögum, innan við 1 milljarði í afgang en útgjöld eru rúmlega 1600 milljarðar. Ég myndi segja að þetta væri áætlun sem byggir á mikilli bjartsýni fremur en raunhæfni. Hún byggir á miklum fyrirvörum frekar en tilfinningu um festu og það er áhyggjuefni. Það sem verra er er að þetta hefði ekki þurft að vera svona. Ef ríkisstjórnin hefði bara gert það sem hún var kosin út á þá held ég að Íslendingar, og við gætum verið í verulega góðum málum nú þegar og værum mikið betur í stakk búin til að takast á við utanaðkomandi áföll. Ríkisstjórnin lofaði að hækka ekki skatta, hún lofaði að taka til í ríkisrekstrinum. Hún fór vel af stað, óskaði eftir hagræðingartillögum og það stóð ekki á landsmönnum. Landsmenn voru að fylgja niðurstöðum kosninga eftir, þ.e. landsmenn vildu aðhald í ríkisrekstri og þeir vildu að þessi ríkisstjórn færi í hagræðingaraðgerðir. Ríkisstjórnin tók á móti hagræðingaraðgerðunum en gerði alveg ofsalega lítið með þær. Í raun svo lítið að það endaði þannig að útgjaldaaukningin var 143 milljarðar en við hefðum getað verið að skila hallalausum fjárlögum nokkuð auðveldlega á þessu ári. Ef það hefði verið gert værum við ekki í því verðbólguástandi sem við erum í í dag. Það var það sem ég held að allir séu sammála um að almenningur vildi.

Af hverju fór ríkisstjórnin ekki þá leið sem hún var kosin út á? Af því að jú, þetta er vinstri stjórn sem virðist ekki geta hamið ríkisútgjöldin og fyrir vikið var farið í einhvern feluleik; skattar voru ekki kallaðir skattar heldur var allt endurskírt til þess að þeim sem var lofað að ekki yrðu skattahækkanir — ég held að hæstv. ríkisstjórn hafi raunverulega trúað því að almenningur sæi ekki í gegnum þetta en það eru allir búnir að sjá í gegnum þetta. Og hvað á að gera? Það á að halda áfram að hækka skatta samkvæmt þessari fjármálaáætlun. Það á að halda áfram að auka útgjöld. Ríkisstjórnin hreykir sér mikið vegna þess að hún ætlar að hagræða svo mikið á tímabilinu. Á næsta ári á hagræðing að vera 21,8 milljarðar. Það er gott ef það á að hagræða og þetta er ágætistala. En þau ætla hins vegar að auka útgjöld um yfir 60 milljarða.

Nú ætla ég að fá að nefna það sem hæstv. fjármálaráðherra er mikið í nöp við að ég nefni, þ.e. að tengja ríkisútgjöldin við heimilisútgjöld. Vissulega er þetta ekki eins en til að ná samhengi hlutanna þá held ég að það sé mikilvægt. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmenn, eða þeir sem horfa, þekki marga sem gera ráð fyrir því að auka við heimilisútgjöld á þessu ári samanborið við í fyrra. Ég held að það séu ekki mörg heimili. Ég held að flest heimili þurfi að draga saman, geti ekki leyft sér jafn mikið og í fyrra, jafnvel heimili, skuldsett heimili eins og ríkissjóður er, sem mögulega eru fá hærri tekjur í ár heldur en í fyrra. Ég ætla að giska á að þau heimili sem eru vel rekin muni ekki eyða meira, þau muni nýta tekjuaukninguna til að borga niður skuldir vegna þess að vaxtakostnaður er að sliga fólk. Þetta er samlíking sem hæstv. ríkisstjórn er illa við. Hún vill eingöngu að við tölum um ríkisútgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, heildartekjur sem hlutfall. Það er góður mælikvarði en það breytir því ekki að við erum samt að hækka útgjöld milli ára. Við erum að hækka útgjöld milli ára. Þurfum við að gera það? Getum við ekki bara staldrað við og sagt: Ástandið er þannig að við ætlum ekki að hækka útgjöld. Við ætlum að rífa í bremsurnar án þess að það komi niður á verðmætasköpun. Við erum ekki að tala um það, við erum að tala um það að skera fituna af ríkissjóði. Er einhverjum sem dettur í hug að ríkissjóður sé fullkomlega rekinn, að það sé ekki fita? Nei, frú forseti.

Ég var hér í umræðu um daginn um stefnu ríkisins þegar kemur að félögum í opinberri eigu. Ég fékk engin svör um hvað þessi ríkisstjórn ætlar að gera á þessu tímabili þegar kemur að fyrirtækjum í samkeppnisrekstri í eigu ríkisins. Af hverju erum við, í gegnum dótturfélög sem eru 100% í eigu ríkisins, að standa í gríðarlegum samkeppnisrekstri? Ég er ekki að tala um lykilinnviðafélög, ég er að tala um dótturfélög sem stunda hér samkeppnisrekstur á stórum skala. Þurfum við að eiga þessi fyrirtæki? Nei. Er ekki nær að aðrir sjái um það? Við gætum kannski losað um eitthvert eignarhald þegar svona stendur á og borgað niður skuldir eða alla vega ekki hækkað jafn mikið skatta. Nú liggur fyrir að það á að hækka enn frekar skatta á bifreiðaeigendur. Við erum öll búin að verða vör við þær skattahækkanir sem urðu hérna 1. janúar. Það á að hækka skatta á baðlón, það á að hækka bankaskattinn af því að jú, þau í ríkisstjórninni telja sennilega að allir hati bankana svo mikið að öllum sé alveg sama þótt skattar hækki á bankana. En bankarnir verða að vera samkeppnishæfir við aðra banka erlendis. Á hverjum enda bankaskattar? Jú, neytendum. Skattar enda fyrst og fremst á heimilum landsins.

Er ég hrifin af þessari fjármálaáætlun? Nei. Er ég glöð með að þau stefni að hallalausum fjárlögum? Já, en það er hægt að gera mikið betur.