157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:47]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Guðjónsdóttur fyrir prýðisræðu. Hún fór yfir málin hér varðandi þessa fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Mig langar aðeins að beina sjónum að því í andsvari mínu hvort þessi fjármálaáætlun hefði mögulega getað litið öðruvísi út ef skattar hefðu ekki verið hækkaðir hægri, vinstri og heimatilbúin verðbólga framleidd þar sem vextir eru að sliga heimilin og fyrirtækin með milljarða kostnaði á mánuði aukalega. Þegar ráðist er að grunnatvinnuvegunum með skattahækkunum minnkar þar með nýsköpun og heildarskattspor samfélagsins og atvinnuleysi fylgir náttúrlega í kjölfarið. Mín spurning til hv. þingmanns er þessi: Ef hlustað hefði verið á öll þau varnaðarorð sem stjórnarandstaðan, og ekki bara stjórnarandstaðan heldur ótal margir aðrir í samfélaginu, hafði uppi um þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem bjuggu til þessa verðbólgu — við skulum ekki gleyma því að þetta er heimatilbúin verðbólga. Hefði fjármálaáætlun litið öðruvísi út ef tekið hefði verið tillit til varnaðarorða úr samfélaginu og frá stjórnarandstöðunni? Ekki vantaði aðhaldið varðandi þessar aðgerðir sem hafa steypt okkur út í það verðbólgubál og vaxtahækkunarferli sem er hafið.