157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:12]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir sína ræðu. Ég er ánægð með hvað hann gerir menntamálum hátt undir höfði og hann er duglegur að koma því á framfæri hér á Alþingi. Af því að ég er búin að hlusta mikið á Sjálfstæðismenn síðan ég kom hérna inn og þeim finnst við ekki skera nógu mikið niður, við eigum að skera meira niður, en ég heyri hvað þingmaðurinn segir: Hann vill að við skerum ekki niður í menntamálum. Ég tók það út úr hans ræðu að það ætti þá bara að skera niður annars staðar og eins og kemur fram í fjármálaáætlun er aðhaldskrafa á öll svið ríkisins nema þegar kemur að heilbrigðismálum, félagsmálum og lögreglu. Annars er bara aðhaldskrafa á öll önnur svið. Myndi hann vilja sjá einhverja breytingu á því að menntamálin ættu líka þarna heima og við ættum að reyna að verja þau líka? Það kemur nefnilega fram í gögnum, bæði í atvinnustefnu og líka í fjármálaáætlun að það á að styrkja háskólastigið og STEM-greinarnar sem eru undirstaðan í atvinnustefnunni sem ég held að sé gríðarlega mikilvægt. Það er líka verið að tala um að efla íslenskukennslu og svona og mig langar að spyrja þingmanninn hvort hann sé ekki sammála mér um að það séu mjög góðar áherslur. Svo er ég, eins og ég nefndi áðan, að reyna að fá það til að ganga saman hvort við eigum að undanskilja þennan risastóra málaflokk, eins og hann er mikilvægur, frá aðhaldsstiginu eins og við gerum með heilbrigðismálin eða hvað vill hann að við gerum — ef ég ætti að fá ráð frá honum af því að ég veit að hann er duglegur að veita ráð úr þessum stól og ég er bara hér til að hlusta.