fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir heiðarlegt svar og ég bara spyr: Er þá árangur menntakerfisins beintengdur fjárframlögum? Núna þegar menntakerfið hefur verið meira og minna á framfæri Sjálfstæðisflokksins í gegnum síðustu áratugi og árangurinn er sem hann, er hann þá í beinu samhengi við fjárframlög? Hér erum við að tala um að fara betur með fé, þessar aðgerðir snúa að fækkun starfsfólks og eiga ekki að koma neitt niður á nemendum. Það er mikil starfsmannavelta í opinbera kerfinu og það ætti ekki að skerða þjónustu við nemendur. Ég held að við getum verið sammála um það, ég og hv. þingmaður, að við getum auðvitað gert betur þegar kemur að aðferðum og hvernig við höldum utan um skólastarfið. Það sem ég er kannski að reyna að fiska eftir er hvort það sé beintenging í þessari fjármálaáætlun milli framlaga til menntamála og árangurs, ef hann gæti svarað því. Ég veit það hins vegar að við þingmaðurinn erum sammála um að það er mikilvægt að skila hallalausum fjárlögum og það er ekki einfalt mál. Það er búið að vera gríðarlegur hallarekstur síðustu ár og ýmsar ástæður fyrir því sem ég nefndi hér í dag. Þessar aðgerðir eru auðvitað sársaukafullar og ef við hefðum fullt af peningum myndi ég gjarnan líka vilja hlífa skólunum. Og svo vil ég nefna það að leikskólar og grunnskólar eru á forræði sveitarfélaganna, ekki ríkisins.