157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:21]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Sú fjármálaáætlun sem hér liggur fyrir er ekki áætlun um festu, ekki áætlun um aga og ekki áætlun um trúverðuga efnahagsstjórn. Hún er fyrst og fremst áætlun um það að halda áfram á sömu braut, að halda plani, misheppnuðu plani, með sífellt meiri álögum, sífellt stærra bákni og sífellt veikari tengingu við raunveruleika heimila og fyrirtækja í landinu. Ríkisstjórnin kynnir þetta sem ábyrga efnahagsstjórn og viðsnúning í ríkisfjármálum en þegar tölurnar eru skoðaðar blasir annað við. Niðurstaðan er afgangur upp á aðeins 1,1 milljarð kr. árið 2027 og í rekstri af þessari stærðargráðu er það nánast ekki neitt. Það þýðir einfaldlega að það má lítið út af bera, það má nánast ekkert út af bera til að þetta plan standist. Það sem er enn verra er að ríkisstjórnin virðist sjálf viðurkenna að aðhaldið sé ekki á útgjaldahliðinni heldur á tekjuhliðinni. Með öðrum orðum, þegar ríkisstjórnin talar um ábyrgð er hún enn og aftur að tala um að taka meira af fólkinu í landinu.

Í tillögunni kemur fram að gert er ráð fyrir verulegum tekjuáhrifum af ólögfestum skattbreytingum á áætlunartímanum. Þetta er því ekki áætlun sem byggir á því að ríkið fari betur með fé. Þetta er áætlun sem byggir á því að almenningur og atvinnulíf eigi að borga meira. Það er nákvæmlega þess vegna sem við Sjálfstæðismenn höfum lagt fram aðra leið. Við viljum létta róðurinn. Kjarni okkar leiðar er einfaldur, að auka ráðstöfunartekjur heimilanna, efla íslenskt atvinnulíf og láta ríkið gera minna og gera það betur. Tillögur okkar byggja á skattalækkunum fyrir heimili upp á um 140 milljarða kr., hagræðingu í ríkisrekstri um yfir 160 milljarða og sölu ríkiseigna til að greiða niður skuldir og lækka vaxtabyrði. Þetta er önnur forgangsröðun og þetta er önnur sýn á hlutverk ríkisins. Munurinn á þessum tveimur leiðum er pólitískur og hann er skýr. Ríkisstjórnin trúir því að lausnin felist í stærra kerfi, meiri tilfærslum, hærri álögum og meiri miðstýringu. Við trúum því að lausnin felist í öflugum heimilum, sterku atvinnulífi og ríki sem kann sér hóf. Ríkið á að gera fátt en það sem ríkið gerir á það að gera vel. Við viljum ekki að ríkið seilist sífellt dýpra í vasa fólks til að viðhalda eigin þenslu. Við viljum skilja meira eftir hjá þeim sem afla verðmætanna, hjá fólkinu sjálfu og fyrirtækjunum sem halda þessu landi gangandi.

Eitt það alvarlegasta við þessa fjármálaáætlun eru forsendurnar. Það þarf að horfa á tölurnar og spyrja: Hvað er verið að gefa sér? Hverjar eru forsendurnar sem menn gefa sér hér í þessari áætlun því að þær eru með ólíkindum? Ég vil nefna tvennt, annars vegar laun og hins vegar almannatryggingar. Launin eru á ári um 350 milljarðar og bætur almannatrygginga eru um 480 milljarðar kr. Þetta er u.þ.b. helmingur af öllum útgjöldum ríkisins, bara þessir tveir liðir. Laun hafa á síðustu 30 árum að meðaltali, 30 ára tímabili með mörgum ríkisstjórnum, hækkað um 6,9% á ári. Bætur almannatrygginga hafa hækkað um ríflega 8% á þessu sama 30 ára tímabili. Þetta er það sem liggur til grundvallar. Skoðum þá hvaða forsendur liggja til grundvallar þessari fjármálaáætlun sem leiða til rúmlega 1 milljarðs afgangs. Ríkisstjórnin gefur sér að laun á árinu 2026 muni hækka um tæplega 6% en þau hækkuðu um 9% á síðasta ári. Ríkisstjórnin gefur sér sömuleiðis að bætur almannatrygginga muni hækka um 6,4% þegar sömu bætur hækkuðu um 12,9% á síðasta ári. Og hvernig sér ríkisstjórnin fyrir sér árið 2030? Jú, að laun munu hækka um 3,3% og bætur almannatrygginga um 5,4%. Þetta áætlar ríkisstjórnin þrátt fyrir að 30 ára meðaltal segi að þetta muni líklega hækka um tvöfalt meira. Því miður eru meiri líkur en svo að þessar forsendur muni aldrei halda. Ef þessar forsendur halda ekki þá fellur spilaborgin, þá gufar þessi litli afgangur upp. Þá standa eftir skattahækkanir, vaxtabyrði og loforð sem ekki standast. Fjármálaáætlun á að byggja á varfærni og trúverðugleika. Hún á ekki að byggja óskhyggju.

Við sjáum líka að vaxtagjöld hins opinbera eru orðin gríðarlega þung byrði. Í áætluninni sjálfri er gert ráð fyrir að vaxtagjöld hins opinbera verði 164 milljarðar árið 2027 og hækki í 172 milljarða árið 2028, fari í 182 milljarða 2029 og verði 187 milljarðar árið 2031. Þetta er einn stærsti útgjaldaliður ríkisins og samt kemur ríkisstjórnin fram með áætlun sem byggir ekki á afgerandi niðurgreiðslu skulda, ekki á raunverulegri hagræðingu heldur áframhaldandi skattheimtu. Þetta er eins og að standa í lekum bát og telja sig geta róið hraðar með því að taka einfaldlega fleiri farþega um borð í stað þess að stinga í gatið, loka gatinu. Planið er ekki að virka og ég minni á að engin þjóð hefur nokkurn tíma skattlagt sig út úr efnahagsvanda, engin. Það er staðreynd. Það er einfaldlega ekki trúverðugt að mæta aukinni verðbólgu, þrýstingi á vexti og þungu rekstrarumhverfi með því að hækka álögur enn frekar. Þvert á móti eykur það kostnað, dregur úr hvötum og veikir grunninn sem velferðin byggir á.

Virðulegi forseti. Það er ekki hægt að láta hjá líða að nefna hér álit fjármálaráðs um þessa fjármálaáætlun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sem er þungur áfellisdómur yfir trúverðugleika þessarar áætlunar. Ráðið segir skýrt að þótt markmiðið um hallalaus fjárlög árið 2027 sé jákvætt þá byggi það á því að ýmsar efnahagslegar forsendur gangi eftir og að stjórnvöld sýni aga sem enn er ekki komið fram í þessari útfærslu í þessari áætlun. Það sem vekur þó mesta athygli er gagnrýni ráðsins á þá stefnu ríkisstjórnarinnar að festa víðtæka og sjálfvirka vísitölutengingu almannatrygginga í lög. Fjármálaráð varar við því að þessi breyting geti skapað misræmi milli útgjalda og tekjuöflunar ríkisins, aukið verðbólguþrýsting, raskað vinnumarkaði og grafið undan sjálfbærni opinberra fjármála. Ráðið segir beinlínis að hér sé um áhættusama stefnumótun að ræða með víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar. Sömuleiðis segir fjármálaráð að framkvæmd hinnar nýju stöðugleikareglu sé ógagnsæ. Ráðið gagnrýnir að stjórnvöld meti sjálf kostnaðarþróun eigin útgjalda með hætti sem sé hvorki skýr í lögum né gagnsær í framkvæmd.

Virðulegi forseti. Okkar leið er önnur. Hún byggir á því að fólk fái meira svigrúm. Hún byggir á því að tekjuskattur verði einfaldari, að persónuafsláttur verði hækkaður verulega, að samsköttun nýtist fjölskyldum betur og að álögur sem íþyngja heimilum verði afnumdar eða lækkaðar. Hún byggir líka á því að barnafjölskyldur finni raunverulega fyrir breytingunni í eigin vasa. En þetta snýst ekki bara um heimilin heldur líka um atvinnulífið. Það er ekki hægt að reka lítið opið hagkerfi á ystu nöf með síhækkandi sköttum, sífellt flóknara regluverki og ríkisvexti sem étur upp allt svigrúm til framtíðar. Samkeppnishæfni Íslands skiptir máli. Fjárfesting skiptir máli. Vinnusemi, frumkvæði og verðmætasköpun skipta máli. Ef stjórnvöld kæfa þann kraft með röngum skilaboðum og röngum aðgerðum þá veikist allt samfélagið. Þess vegna segjum við: Léttum byrðarnar, einföldum kerfin, treystum fólkinu betur og látum ríkið einbeita sér að kjarnahlutverki sínu.

Staðan í dag er alvarleg. Heimilin finna fyrir háum vöxtum. Fyrirtækin finna fyrir óvissu og kostnaði. Sveitarfélögin finna fyrir þrýstingi og fólkið í landinu á skilið meira en áætlun sem hangir á veikum forsendum og litlum afgangi sem mun hverfa við fyrsta áfall. Sjálfstæðisflokkurinn býður upp á annan valkost. Við viljum ábyrgð í ríkisfjármálum sem byggir á raunverulegum aðgerðum, ekki á bjartsýninni einni saman. Þess vegna segi ég að þessari fjármálaáætlun verður ekki treyst. Hún er of veik og of háð því að allt fari á besta veg eftir óskhyggjunni einni saman. Það þarf festu, aga og skýra sýn. Þá sýn hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt fram. Þar liggur hinn raunverulegi valkostur fyrir heimilin, fyrirtækin og framtíð Íslands.