157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:33]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir spurningu til mín. Sögulegar skýringar á langvarandi hallarekstri nefnir hér hæstv. ráðherra. Við höfum heyrt það frá því að þessi ríkisstjórn tók við að hún hefur talað mjög mikið og sífellt um það að hér hafi verið hallarekstur á rekstri ríkisins á síðustu árum og á síðasta kjörtímabili og skautar, að því að ég tel, mjög léttilega fram hjá þeim útgjöldum sem síðasta ríkisstjórn neyddist til að fara í við heimsfaraldur og svo náttúruhamfarir á Reykjanesi. Þegar hæstv. ráðherra spyr af hverju bætur almannatrygginga hafi hækkað meira en laun, þá vil ég fá að minna á það að á tímabilinu 2016–2023, ef ég man rétt, hafa bætur almannatrygginga hækkað um 80 milljarða. Ég tel að sú ákvörðun sem ríkisstjórnin tók hér á síðustu dögum fyrir páskahlé, að binda hér bætur almannatrygginga við launavísitölu muni fela í sér mjög hættulega vegferð í ríkisfjármálum sem mun hækka enn meira bætur almannatrygginga, sem ég tel varasamt, taka út hvata úr atvinnulífinu til vinnu. Í fyllingu tímans, eftir fimm til tíu ár, mun það leiða til þess að bætur almannatrygginga verði hærri en laun. Þetta er sú leið sem ríkisstjórnin hefur viljað fara, hefur skautað mjög léttilega fram hjá þeim kostnaði sem það mun innibera og við höfum varað við því og fjármálaráð varar við því sömuleiðis.

(Forseti (EÁs): Forseti vill minna hv. þingmann á að ávarpa ávallt forseta í upphafi máls síns.)