fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Hér nefnir hæstv. ráðherra breytingar sem gerðar voru á örorkukerfinu á síðasta ári, sem er áhugavert vegna þess að einn ríkisstjórnarflokkanna greiddi t.d. atkvæði gegn þeim breytingum en fagnaði hér stórkostlega þegar þær tóku gildi eins og sá flokkur hefði komið því á laggirnar. Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra til baka: Gerir hæstv. ráðherra í alvöru ráð fyrir því að þær breytingar sem hér voru gerðar með því að festa bætur almannatrygginga við launavísitölu muni ekki hækka bætur almannatrygginga á tímabili fjármálaáætlunar? Það væri mjög áhugavert að heyra það. Og þegar ráðherra mætir hér líka og talar um mikið aðhaldsstig í þessari áætlun þá hljómar það nú bara eins og hver annar brandari þegar útgjaldaauki ríkisins í síðustu fjárlögum var 143 milljarðar. (Forseti hringir.) Það er allt aðhaldið sem er í boði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.