fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Þetta var athyglisverð ræða hjá hv. þingmanni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Maður hefði haldið að sérstaklega flokkur sem hefur rekið ríkissjóð í halla um árabil skuli fagna því að það séu komin ný stjórnvöld sem ætla að snúa dæminu við. Þess vegna er maður undrandi á því að menn taki þessari áætlun ekki fagnandi. En það sem kom mér undarlega fyrir sjónir eru þessar aðferðir sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að fara í, þ.e. að selja innviði landsins, t.d. Landsnet. Það er alveg ljóst að ef við ætlum að halda áfram þeirri atvinnuuppbyggingu sem stefnt er að þá þurfum við að byggja einmitt upp dreifikerfi raforku. Það að ætla sér að losa einhvern mikinn pening þar út finnst mér ekki skynsamlegt því að það er alveg ljóst að það er fjárfestingarþörf þar inni. Síðan finnst mér heldur ekki skynsamlegt, eða í rauninni bara furðulegt, að ætla að selja Isavia, sem er nánast eina hliðið út úr landi, þannig að það verði þá mögulega erlendur aðili eða eitthvað fyrirtæki sem hefur einokunaraðstöðu hvað varðar þetta eina hlið út úr landi. Aðrar þjóðir hafa reynt þetta. Danir reyndu þetta auðvitað, þeir seldu Kastrup-flugvöll til Ástralíu. Það var auðvitað gert með skuldsetningu þannig að allar tekjur af vellinum fóru í að greiða upp skuldir þess fyrirtækis sem fjárfesti í Kastrup. Ég hélt í sannleika sagt að Sjálfstæðisflokkurinn hefði lært eitthvað af því að selja t.d. allar eigur sveitarfélaganna á Suðurnesjum hér skömmu fyrir hrun inn í einhver félög sem átti að verða eitthvað svo ljómandi gott, (Forseti hringir.) en núna virðist vera bara sama platan sett aftur á fóninn (Forseti hringir.) og það eigi að selja Isavia, Landsnet og Landsvirkjun.