fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna til mín. Það er nú merkilegt að heyra hv. þingmann nefna hér að Sjálfstæðisflokkurinn sé genginn aftur og kominn í einhvern skollaleik því þessi ríkisstjórn, sem hér er við völd akkúrat núna, er svo sannarlega gengin aftur. Hér er déjà vu í boði Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Við erum að upplifa á hverjum einasta degi, hverja einustu viku, ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Það er með ólíkindum að ríkisstjórnarflokkarnir sem hér eru við völd hafi bara nákvæmlega ekkert lært á öllum þeim árum sem þeir hafa verið hér í stjórnarandstöðu.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf ekki að finna upp hjólið því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt það í gegnum áratugi að okkar hugmyndafræði hefur virkað og hún hefur virkað vel. Hér nefnir hv. þingmaður hugmyndir okkar um að selja eignir ríkisins og nefnir t.d. Landsnet. Hugmyndir okkar sem við kynntum í efnahagstillögum Sjálfstæðisflokksins núna fyrir páska voru eignasala fyrir rúma 600 milljarða til þess að greiða niður skuldir ríkisins og lækka hér vaxtabyrði ríkisins um hátt í 50 milljarða á ári. Ég ætla að minna hv. þingmann á það að flutningskerfi raforku þarf að bæta verulega hér á landi. Fjárfestingarþörfin þar er 200–300 milljarðar og það þarf að hugsa með nýjum hætti: Hvernig ætlum við að auka samkeppnishæfni Íslands svo við getum haldið áfram að skapa hér verðmæti? (Forseti hringir.) Við erum að tala um að selja minni hluta Landsnets til lífeyrissjóða sem eru jú í eigu þjóðarinnar.