157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:43]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Það hefur komið fram í umfjöllun, m.a. um nýtt innviðafélag, að auðvitað ætlast lífeyrissjóðirnir til þess að fá góðar arðgreiðslur af þessum fjárfestingum sínum. Ég vil bara minna á að þetta er hættulegt, þetta er ekki gott, að ætla að fara að selja þessa innviði. Við vitum það að þegar þetta er farið af stað í sölu þá er nú lítið utanumhald um það hvert það fer síðan í framhaldinu. Það þarf að byggja upp þessa innviði. Þetta er einokunaraðstaða sem Landsnet býr við, náttúrulega einokun, vegna þess að það er ekkert vit í því að byggja hér upp mörg flutningskerfi. Mér finnst að þessi litla þjóð ætti að koma sér aðeins út úr þessari algjöru frjálshyggjuhugsun og horfa raunsætt á þetta. Er það skynsamlegt að selja þessa innviði sem við þurfum að byggja upp til að fá pening inn í ríkissjóð og sömuleiðis, ekki síður, að selja Keflavíkurflugvöll? (Forseti hringir.) Mér finnst þetta ekki vera raunsætt til frambúðar fyrir þjóðina (Forseti hringir.) að þetta sé eitthvað jákvætt, frú forseti. Þetta er neikvætt.