157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:44]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Þarna greinir okkur á í pólitík. Ég er eiginlega hálffegin að heyra það. Ég er hálffegin að heyra hv. þingmann fara út á ystu nöf í vinstri mennsku. Við þurfum, eins og ég sagði áðan, að byggja upp innviði. Við vitum að á milli 20–30% af þeirri orku sem framleidd er á Íslandi dettur niður dauð vegna þess að við getum ekki fleytt henni þangað sem hennar er þörf vítt og breitt um landið. Við þurfum að styrkja flutningskerfi raforku. Við þurfum að leita leiða — verkefni okkar sem þjóðar eru mörg og þau eru brýn. Ég ætla að nefna eina af þeim hugmyndum um eignasölu sem eru í efnahagstillögum Sjálfstæðisflokksins sem er að selja Landsbankann í öllu lagi. Hann er líklega metinn á um 400 milljarða. Ég sé enga ástæðu fyrir því að ríkið sé að vasast hér í fjármálaþjónustu og reka tryggingafélag. (Forseti hringir.) Það styður greinilega hv. þm. Sigurjón Þórðarson.