157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:46]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir ræðu sína og spyrja aðeins frekar út í þessa stefnumörkun Sjálfstæðisflokksins sem virðist vera býsna róttæk en býsna tilviljanakennd að einhverju leyti. Þarna eru nefnd nokkur mjög mikilvæg innviðafyrirtæki, meira að segja Landsnet sem er í einokunarstarfsemi en ekki Landsvirkjun. Þegar eftir því var kallað þá svöruðu talsmenn Sjálfstæðisflokksins í borginni því þannig til að það ætti ekki að selja hlut í Orkuveitu Reykjavíkur. Þó hefur Sjálfstæðisflokkurinn áður, t.d. í Kópavogi og Garðabæ, selt sinn hlut í Orkuveitu Reykjavíkur, raunar til Orkuveitunnar, en líka í Reykjanesbæ og í Hafnarfirði hlut í Veitum núna síðast á síðasta kjörtímabili. Það væri fróðlegt fyrir þingheim að heyra sýn formanns Sjálfstæðisflokksins á það hvaða mikilvægu innviðafyrirtæki eigi að vera í almannaeigu, hvort það sé ekkert skrýtið að setja fram stefnu um að innviðafyrirtæki í einokunarverkefnum eins og Landsnet séu einkavædd, alla vega að hluta, en að það fari eftir því hver er spurður hvort Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur verði einkavædd, alla vega að hluta.