157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:48]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Í þessum efnahagstillögum okkar eru tillögur um sölu eigna. Við nefnum þar sömuleiðis að ríkið á umtalsvert miklar eignir í fasteignum, í jörðum og svo í fyrirtækjum. Það er skoðun mín að ríkið eigi að eiga Landsvirkjun að öllu leyti. Það er skoðun mín t.d. að það sé öruggt að ríkið selji minni hluta í Landsneti til að geta fjármagnað uppbyggingu á flutningskerfi raforku sem er stórlega ábótavant. Ég treysti Alþingi Íslendinga fyllilega til þess að setja skýran lagaramma um sölu á minnihlutaeign í Landsneti, selja hana til lífeyrissjóða þannig að fyrirtækið væri áfram í eigu þjóðarinnar með jú öðrum hætti en að það væri hægt að tappa þar af fé til þess að nota til uppbyggingar á flutningskerfi raforku til þess að við getum farið í stórfellda verðmætasköpun hringinn í kringum landið sem ég veit ekki betur en að þessi ríkisstjórn sé að boða í atvinnustefnu sinni.

Hv. þingmaður nefnir hér einokunarverkefni. Þá get ég nefnt t.d. Íslandspóst: Á ríkið að vera að sinna því þegar við erum komin með önnur fyrirtæki og þörf eða eftirspurn er eftir annars konar þjónustu sem nú er verið að veita? Mér finnst fyllilega eðlilegt að selja Íslandspóst að öllu leyti. Það er frumvarp sem hv. þingmaður sem situr hér í salnum, Bryndís Haraldsdóttir, hefur margoft lagt hér fram en hefur ekki hlotið brautargengi. Hv. þingmaður kallar þetta býsna róttækar hugmyndir. Það gerum við Sjálfstæðismenn ekki. Þetta er hægri stefna og hún er vel.