157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:50]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrstu svörin. Hægri stefna. Já, hefur hún reynst vel? Nei, við getum bara litið til Bretlands í því en líka víða annars staðar þar sem innviðir hafa beinlínis bara legið undir skemmdum og ríki hafa neyðst til að þjóðnýta þá beinlínis til þess að vinna bug á því. Ég var líka að kalla eftir orkufyrirtækjum í eigu sveitarfélaga, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið mjög duglegur við að selja, á býsna lágu verði að mínu mati, Orkuveituna og önnur sambærileg fyrirtæki sem ættu að vera sambærileg við Landsvirkjun sem hér var nefnd, en raunar eru Veitur algerlega sambærilegar líka við Landsnet, þ.e. eru dreifiveitur fyrir þá orku og vatn sem þessi fyrirtæki miðla. Hver eru svör formanns Sjálfstæðisflokksins um þessi fyrirtæki eða er eitt svar varðandi Landsnet og annað varðandi Veitur?