fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég tek undir með hv. þingmanni hvað varðar tækifæri varðandi innviðafélagið til uppbyggingar á samgönguverkefnum í hinum dreifðu byggðum. Ég held að það sé alveg ljóst að við sem þar búum erum ekkert frekar undanskilin því en aðrir að borga veggjöld. Aftur á móti er það þannig að umferð um þessar samgönguframkvæmdir er miklu minni en t.d. hér á suðvesturhorninu. Það er alveg ljóst að til þess að innviðafélagið geti stutt við verkefni, t.d. fyrir austan, vestan eða norðan, á fáfarnari vegum en eru hér á suðvesturhorninu þarf aðkomu ríkisins. Þá þarf ríkið að leggja til fjármuni til innviðafélagsins. Það er kannski það sem ég var að gagnrýna hér og snýr að fjármálaáætlun að það kemur ekki fram í áætluninni þess efnis að það þurfi. Það liggur alveg fyrir, og ég held að ég og hv. þingmaður séum alveg sammála um það, að þegar kemur að uppbyggingu samgönguverkefna þar sem umferð er ekki nægjanleg til þess að standa undir kostnaði til að borga niður framkvæmdina þá þarf hið opinbera að koma að með fjárframlög og þá þarf að leggja innviðafélaginu til framlög. Það er ekki í þessari áætlun, alla vega sé ég það ekki og ég held að ég sé nokkuð þokkalega glöggur á tölur, og það er akkúrat það sem vantar.