fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Smá söguupprifjun. Það eru ekki mörg ár síðan Sjálfstæðisflokkurinn fór í kosningabaráttu með slagorðið: Lægstu vextir í sögunni. Þetta skeið varði í fjóra mánuði. Síðan húrruðust þeir upp. Auðvitað var hægt að gefa einhverjar skýringar á því. Þetta er einmitt það sem við erum alltaf að benda á. (Gripið fram í.) Það er svo erfitt að vera með lítinn gjaldmiðil og þurfa að bregðast við þegar svona mikil áföll bresta á, svo ég svari því nú bara. Mér fannst svolítið einkennilegt að taka þetta sem eitthvert sérstakt dæmi.
Varðandi það sem fjármálaráð er að benda á þá kom ég inn á það í minni ræðu að auðvitað er fjármálaráð að veita umsögn um hið ýmsa til að veita ríkisvaldinu, ríkisstjórninni og örugglega fjárlaganefnd sem fær fjármálaáætlun til sín ákveðið aðhald og gefur ábendingar inn í vinnuna. Við eigum að taka öllum ábendingum frá fjármálaráði alvarlega og fara vel yfir þær og meta. (Forseti hringir.) En ég minni samt á að fjármálaráð er líka að fagna því að þrátt fyrir að efnahagsforsendur hafi versnað þá snúist þetta allt um hallalaus fjárlög árið 2027.