157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:06]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég ætla að gera grein fyrir þeim tveimur málefnasviðum sem heyra undir utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytið, annars vegar utanríkismálum og hins vegar alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Þetta eru málaflokkar sem skipta auðvitað grundvallarmáli fyrir öryggi landsins, hagsmuni landsins okkar og stöðu okkar í heiminum. Við lifum á tímum þar sem hriktir í stoðum alþjóðakerfisins þar sem alþjóðalög, mannréttindi og fjölþjóðlegt samstarf eiga undir högg að sækja og þar sem ekki síst smærri ríki eins og Ísland þurfa enn frekar en áður að tala skýrt, standa fast á hagsmunum sínum og rækta bandalög sín af festu.

Í utanríkismálum er meginverkefnið skýrt, sem við ræðum hér í tengslum við fjármálaáætlun. Við ætlum að verja hagsmuni Íslands með öflugri málafylgju á alþjóðavettvangi, virku öryggis- og varnarsamstarfi, stöðugri hagsmunagæslu í viðskiptum og nánu samstarfi við okkar bandamenn. Þetta eru okkar lykilverkefni. Mikilvægi þess að Ísland taki afstöðu til þess hvar það stendur í samfélagi þjóða er að mínu mati brýnna nú en það hefur verið í langan tíma. Það er ljóst að varnir Íslands, öryggi og fullveldi verða aðeins tryggð með virku samstarfi. Aðildin að Atlantshafsbandalaginu, NATO, og varnarsamningurinn við Bandaríkin eru þar að sjálfsögðu grunnstoðir en svæðisbundið og tvíhliða samstarf, ekki síst m.a. norrænt varnarsamstarf, ég vil líka nefna varnarsveitina JEF, verður sífellt mikilvægara. Allt þetta skiptir miklu máli. Þess vegna er nú lögð áhersla af okkar hálfu að hrinda í framkvæmd nýrri stefnu í varnar- og öryggismálum, efla innlenda viðbúnaðargetu, mannauð, áætlanir, varnarmannvirki og búnað til að Ísland verði áfram trúverðugur bandamaður í varnarsamstarfi og það ríður á. Allsherjar innrás Rússlands í Úkraínu er áfram alvarlegasta öryggisógn sem Evrópa hefur staðið frammi fyrir frá lokum síðari heimsstyrjaldar og Ísland mun áfram undir þessari ríkisstjórn styðja Úkraínu af festu. Eins og síðustu misseri hafa leitt í ljós er Ísland ekki undanskilið áhrifum af völdum annarra átaka eða alþjóðlegra vendinga þótt þau eigi sér kannski stað fjarri Íslandsströndum og því er nauðsynlegt að íslensk utanríkisþjónusta sé í stakk búin til að fylgjast vel með í nánu samstarfi og samráði við vinaríki og stjórnvöld tilbúin að bregðast við eins og aðstæður kalla á á hverjum tíma.

Þessar áherslur sjást skýrt í fjármögnuninni. Framlög til utanríkismála verða 25,9 milljarðar árið 2027 og 27,4 milljarðar árið 2031. Aukningin frá fjárlögum 2026 nemur um 16%. Þar vegur þyngst aukin þörf í varnar- og öryggismálum sem áður var nefnd, en jafnframt er knýjandi þörf fyrir sterkt alþjóðlegt tengslanet með virkri þátttöku í tvíhliða og fjölþjóðlegu samstarfi.

Mikilvægt er að gæta hagsmuna Íslands í viðskiptum og tryggja þá vel til framtíðar, m.a. á grundvelli fríverslunarsamninga. Kosningarnar í lok sumars um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið eru gríðarlega mikilvægur þáttur í að ná sátt í samfélaginu um hvaða stefna verður tekin í hagsmunagæslu til næstu ára.

Áætlunin gerir ráð fyrir viðbótaraukningu fyrir málefnasvið 4 Utanríkismál, um 1,5 milljarða kr. árið 2027 og 500 millj. kr. árlega árin 2028 til 2031, fyrst og fremst vegna varnarmála. Þetta er auðvitað eðlilegt viðbragð við breyttu öryggisumhverfi og auknum skuldbindingum Íslands gagnvart bandalagsríkjum sínum og þar verður enginn afsláttur gefinn, ekki af hálfu okkar. Ekki síður finnum við að það er vel haldið að bandalagsríkjum af hálfu NATO hvernig skuldbindingarnar eru uppfylltar. Á móti nýjum verkefnum er einnig gert ráð fyrir talsverðu aðhaldi og að aðhaldsaðgerðir muni skila um 320 millj. kr. á næsta ári og um 960 millj. kr. á ársgrundvelli í lok tímabilsins.

Í alþjóðlegu samhengi á þróunarsamvinna víða undir högg að sækja, sérstaklega vegna aukinna þarfa framlagsríkja á sviði öryggis- og varnarmála. í alþjóðlegu samhengi. Við stöndum frammi fyrir svipuðum veruleika en við reynum eins og hægt er að draga ekki úr framlögum til fátækari ríkja heims. Við munum áfram byggja þróunarsamvinnuna á skýrri stefnu þar sem mannréttindi og jafnrétti kynjanna, mannauður og grunnstoðir samfélaga eru lykilatriði og framlög til þróunarsamvinnu endurspegla þessa stefnu.

Ég sé, frú forseti, að tíminn er akkúrat að klárast en ég bara vísa í mína eigin framsögu, niðurlagsorð framsöguræðu minnar um þessi málefnasvið frá því síðast, þar sem umræðan var einmitt um að átök og ófriður væru brýning fyrir okkur að hlúa að alþjóðlegu samstarfi, standa vörð um hagsmuni Íslands og leggja okkar af mörkum til verkefna sem stuðla að friði og stöðugleika. Þau verkefni hafa síður en svo breyst og ef eitthvað er hefur þunginn aukist á að við Íslendingar stöndum okkur á þessu sviði.