157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:15]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Það samtal er hafið en ég vil líka undirstrika að sú vinna sem átti sér m.a. stað á forsendum þverpólitísku nefndarinnar og skilaði stefnu í varnar- og öryggismálum mun halda áfram á forsendum þeirrar nefndar. Ég tel mjög mikilvægt að þingið verði líka með okkur í því að kalla fram að við stöndum undir þessum skuldbindingum.

Ég vil líka vekja athygli hv. þingmanns á því að það er sérstakur kafli hjá fjármálaráðuneytinu í fjármálaáætluninni sem dregur fram að þetta samtal er í gangi. Það er verið að vinna að þessu. Það er líka verið að vinna að skýrslunni um hvernig við uppfyllum þetta 1,5%. Við sjáum það nú þegar, miðað við þau framlög sem eru komin, þá erum við með 0,8–0,9% sem uppfyllir þetta nú þegar samkvæmt þeim kröfum sem NATO leggur á okkur. En það er líka alveg ljóst að í þeim samtölum sem við höfum haft innan ríkisstjórnar og líka við stjórnkerfið að það þýðir ekki að — ég ætla ekki að segja að það sé tilhneiging en það eru margar mjög góðar og fínar hugmyndir víða um samfélagið um hvað gæti fallið undir 1,5%. Það sem ég hins vegar legg ríka áherslu á er að það sé skýrt að þetta séu varnartengd málefni. Það þýðir ekki að það sé ekki hægt að nota þetta til borgaralegra verkefna. Við sjáum það bara, og hv. þingmaður þekkir það vel, að til að mynda eru flugbrautirnar í Keflavík fjármagnaðar með framlögum frá NATO en eru samt notaðar 98% í borgaraleg verkefni. En þær eru til staðar fyrir varnartengd verkefni og þannig viljum við sjá þetta unnið áfram. Það sem verður að gerast er að við uppfyllum okkar skuldbindingar. Það samtal er í gangi. Það er mikill þungi í umræðunni og hann er ekki að minnka, ekki bara út af stríðinu í Úkraínu heldur líka vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Það skiptir máli að finna að það er vonandi samhljómur hér í þinginu um að við Íslendingar náum að uppfylla þessar skuldbindingar fyrir árið 2035. Ég vil sjá þær uppfylltar fyrr.