fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir ágæta yfirferð hér í kvöld. Ég ætla að vera á svipuðum nótum og sú sem hér talaði á undan mér varðandi það hvernig við stöndum við skuldbindingar okkar um aukin fjárframlög í þágu öryggis- og varnarmála. Ég vísa hér til nefndarálits utanríkismálanefndar með þeirri stefnu sem við höfum nú samþykkt þverpólitískt á sviði öryggis- og varnarmála þar sem við lögðum sérstaka áherslu á mikilvægi þess að efla greiningargetu og upplýsingamiðlun og þær áskoranir og ógnir sem geta haft og munu hafa áhrif á Ísland. Hér er jafnframt bent á að skoða megi lagaramma um meðferð trúnaðarupplýsinga, öryggisvottanir og aðgengi að viðkvæmum gögnum. Samhliða þessu er einnig lögð áhersla á að efla kennslu og rannsóknir á sviði varnar- og öryggismála, m.a. með hliðsjón af erlendum fyrirmyndum, og nærtækt er að líta til Norðurlandanna í því samhengi. Hér vísa ég til systurstofnana Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands sem eru í rauninni í beinum tengslum við þarlend utanríkisráðuneyti um öfluga greiningargetu og -vinnu þar sem mikið er lagt upp úr alþjóðlegu samstarfi fræðimanna. Í ljósi þess að Ísland hefur að mjög mörgu leyti allt aðra nálgun en stærri ríki sem hafa yfir her að búa verður vægi slíkra þátta sífellt mikilvægara. Þess vegna langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra um þessar áherslur sem koma fram í nefndaráliti utanríkismálanefndar um aukna greiningargetu annars vegar og eflingu kennslu og rannsókna hins vegar. Hvernig koma þær áherslur fram í fjármögnun og forgangsröðun innan málaflokks utanríkismála? Hvernig sér ráðherra fyrir sér að þessi uppbygging geti þróast á næstu árum?