fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þessa fyrirspurn. Það sem skiptir máli líka þegar við erum að tala um getu og markmið Atlantshafsbandalagsins m.a., þá er hluti af því mannauður, hluti af því eru greiningar og hluti af því er þessi upplýsingamiðlun. Við höfum verið að setja í CERT-IS til að mynda innan við 400 millj. kr. á síðasta ári en á þessu ári erum við að tala um 750 millj. kr. aukningu út af breyttum veruleika, út af því að við erum að tryggja öryggi. Við erum að sækja fram í þessu og við viljum ekki vera eftirbátar okkar nánustu samstarfsríkja eins og Norðurlandanna. Þar er ýmislegt að gerast. En ég legg ríka áherslu á það að við þurfum að koma ákveðnu skipulagi frekar á það hvernig við byggjum upp mannauð þegar kemur að varnar- og öryggismálum. Þetta er ekki bara gert á vegum utanríkisráðuneytisins af því að varnar- og öryggismál fléttast inn í fleiri ráðuneyti; innviðaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti og jafnvel fleiri þegar kemur að því að treysta mannauð á þessu sviði.
Ég tek undir með hv. þingmanni, hún spyr hvort ekki eigi að efla þetta og líka kennslu. Ég held að það skipti máli og líka greiningar. Af því að hér er hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson þá hefur hann ítrekað flutt tillögu um að fara í samstarf við Alþjóðamálastofnun um rannsóknarvinnu á því sviði og ég held að það sé líka eitthvað — ég hef reyndar lýst áhuga á því sjálf og held að ég hafi meira að segja verið flutningsmaður einu sinni á því máli. Þetta eru allt hlutir sem við þurfum að ramma betur inn og halda áfram með. Ég viðurkenni það alveg að við erum mjög með fókusinn á þeim bolta að uppfylla þessi 1,5% og hvernig við gerum það og inn í þá mósaíkmynd fléttast ýmislegt en það verður að vera á forsendum varnarmála, í gegnum þau gleraugu, þegar kemur að því hvað fellur undir það.