fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka aftur fyrir fyrirspurnina. Ég vil sérstaklega geta þess að bara núna í vikunni var námskeið haldið, sem við erum búin að halda tvisvar á ári, á vegum utanríkisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins einmitt til þess að auka þekkingu og innsýn í þennan mikilvæga málaflokk, varnar- og öryggismál, til þess að auka þekkingu meðal fræðasamfélagsins á því hvernig stofnanir eru byggðar upp, hvaða þekking er þar. Við erum að tala um fræðasamfélagið, stofnanir, Samorka var þar m.a., við erum að tala um ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæsluna, sendiherra okkar og fleiri aðila sem sóttu þetta námskeið og við munum halda það reglulega. Þarna voru fjölmiðlar líka, mjög mikilvægt að fjölmiðlar séu meðvitaðir um hvað er í gangi og fá til þess upplýsingar, þannig að það er mjög margt, eins og ég segi, í gangi. Um leið vil ég undirstrika að við erum að fara úr 1.100 millj. kr. í 2.600 millj. kr. á næsta ári. Þetta eru stór skref. Það er enn þá verið að móta og setja þetta niður. En ég tek undir það að við þurfum líka að fara með ákveðnum hætti í frekara samstarf við fræðasamfélagið til að byggja upp þekkingu þar en líka byggja upp þessa þekkingu innan stofnana og innan fyrirtækja. Þegar við förum til Finnlands til að mynda þá er þar mjög markvisst verið að vinna með fyrirtækjum og fyrirtækin sjálf hafa frumkvæði að því að móta viðbragðsáætlanir í varnar- og öryggismálum og taka virkan þátt í því hvernig hægt er að byggja upp áfallaþol o.s.frv. Það er líka hér á Íslandi, það hafa allir áhuga á þessu, það eru allir að klukka sig inn. Ég fagna því að fólk er mjög meðvitað um þá ábyrgð sem fylgir því að tryggja öryggi landsins okkar í þessum hverfula heimi.