fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Hæstv. ráðherrum og ýmsum stjórnarliðum hefur verið tíðrætt um að þau treysti sér til að taka erfiðar ákvarðanir og fyrir það eigi að bera lof á þau. En ákvarðanir um sparnað eru þeim greinilega of erfiðar. Það birtist í þessari áætlun og eins í því sem stjórnin hefur gert fram að þessu. Fram kemur að mesta útgjaldaaukningin hlutfallslega sé til utanríkismála, meiri en til heilbrigðismála, og tekið fram að það sé í samræmi við forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Gott og vel. Hæstv. ráðherra hefur leitast við að útskýra það að aðstæður í heiminum kalli á aukna fjárfestingu í varnarmálum og ekkert út á það að setja að við gerum auknar ráðstafanir t.d. varðandi tölvuvarnir og ég tala nú ekki um baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi sem ekki má líta fram hjá í þessum efnum hvað varðar öryggi þjóðarinnar. Þar er mikil ógn. Hingað hefur verið hleypt alls konar vafasömu fólki. Þótt það sé aðeins utan við málasvið hæstv. ráðherra þá hefur hann nú aðeins seilst inn á þetta svið. En varðandi þessi áform um aukin útgjöld þá finnst mér enn skorta á svör frá hæstv. ráðherra um það hvernig eigi að nýta þetta. Að hversu miklu leyti fer þetta til að mynda í vopnakaup fyrir aðrar þjóðir? Hvernig hefur samskiptum Íslands við Bandaríkin verið háttað um varnarmál frá því að hæstv. ráðherra tók við embætti? Allir forverar hæstv. ráðherra í mörg ár og áratugi hafa þurft að svara spurningum um það hvers vegna framlög Íslendinga til varnarmála væru ekki meiri en raun ber vitni. Það hafa menn leitast við að gera með því að útskýra sérstöðu Íslands og gengið ágætlega. En með hvaða hætti hefur hæstv. ráðherra, að því marki sem hann hefur náð fundum manna í Bandaríkjunum, nálgast það? Hvernig hefur hæstv. ráðherra útskýrt afstöðu Íslands? Hefur hæstv. ráðherra notað tækifærið til að gagnrýna Bandaríkin og talið það til þess fallið að skila árangri?