fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Ég hefði þegið skýrari svör um með hvaða hætti til standi að uppfylla þessa kröfu um 1,5%. Ég spurði t.d. sérstaklega um vopnakaup. Ég gat um það að það væri sjálfsagt mál að styrkja varnir á sviði tölvumála, rafrænar varnir, og ég held að það sé nú enginn ágreiningur hér á Alþingi um mikilvægi þess að efla Landhelgisgæsluna sem hefur átt nokkuð í vök að verjast hvað varðar fjárveitingar á liðnum árum. Það eru hlutir sem eru tiltölulega óumdeildir. En hæstv. ráðherra ætlar að svara stóru spurningunni um með hvaða hætti hann hafi nálgast Bandaríkjamenn og það er mikilvægt að fá svar við því, því að það getur haft mjög veruleg áhrif á m.a. kostnaðinn við varnarmál á Íslandi. Við höfum notið góðs af varnarsamningi við Bandaríkin, tvíhliða samningi, og auðvitað þátttöku í NATO líka til mjög margra áratuga. En við höfum líka á móti fært ákveðnar fórnir, veitt hér aðstöðu sem var auðvitað mjög umdeilt á sínum tíma eins og menn þekkja, hvort Ísland ætti að hverfa frá hlutleysisstefnu sinni. Það var gert. En með hvaða hætti nálgast núverandi hæstv. utanríkisráðherra Bandaríkin?
Að lokum vil ég þó þakka fyrir það sem vel er gert eða fyrir jákvæðar vísbendingar í þessari áætlun. Sú jákvæðasta af öllum er kannski sú að samkvæmt áætlun er ekki gert ráð fyrir að ráðist verði í aðildarviðræður við Evrópusambandið á nýju ári, ekki gert ráð fyrir kostnaði við það sem yrði mjög mikill, ég tala nú ekki um afleiddan kostnað ef út í þetta yrði farið allt saman. En það er ekki gert ráð fyrir að það þurfi að leggja kostnað í það, enda myndi þá væntanlega rekstur ríkissjóðs detta öfugu megin við núllið árið 2027 við það eitt. Fyrir það vil ég þakka en eftir stendur spurningin um samskipti við Bandaríkin.