fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég vil sérstaklega draga fram, talandi um að splæsa, að það er einmitt splæst á þetta verkefni a.m.k. einni síðu í fjármálaáætluninni. Þetta er verkefni sem er þvert á ráðuneyti. Þetta er í vinnslu. Þetta er á bls. 55–56. Við erum að vinna skýrslu líka og erum að vinna að þeirri greinargerð sem við þurfum að gefa NATO varðandi það hvernig við ætlum að uppfylla þessi skilyrði. En það er alveg ljóst, af því að hér var verið að tala um Bandaríkin áðan, að fulltrúar Bandaríkjanna á vettvangi NATO hafa lýst yfir ánægju með áherslu okkar íslenskra stjórnvalda og hvernig við teljum varfærnislega inn í þetta 1,5% og erum frekar íhaldssöm hvað það varðar, af því að þrýstingurinn er á að þetta sé raunverulega varnartengt þó að við getum notað þetta líka í borgaraleg verkefni. Fyrir okkur Íslendinga skiptir það máli, til að mynda með Gæsluna, að hún geti sinnt ötullega sínum borgaralegu verkefnum sem hún gerir svo vel, en um leið að við getum alltaf uppfyllt okkar skuldbindingar. Eins og t.d. varðandi loftrýmisgæsluna, það er lykilatriði fyrir okkur að uppfylla þau skilyrði og þær kröfur sem gerðar eru til okkar. Þegar aðrar þjóðir eru að senda hingað liðssveitir fyrir marga milljarða til þess að verja og tryggja eftirlit í okkar lögsögu þá verðum við líka á móti að skila okkar. Það höfum við gert alveg þokkalega í gegnum tíðina og samstarfið verið gott.
Mér finnst hins vegar dálítið dýrmætt og gott að finna það að allir flokkar hér eru með fókusinn á þessu 1,5%. Mér finnst það gott veganesti inn í þá miklu vinnu sem er nú þegar í gangi og mun halda áfram af því að við erum að vanda okkur. Ég held að hluti af því að vanda sig enn frekar og gera þetta þannig að það náist enn frekari sátt um verkefnið sé einmitt að klukka þingið og gera það þvert á flokka.