157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[20:51]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég ætla að halda áfram að ræða þetta 1,5% sem hefur verið vinsælt hér í kvöld að ræða og varnir landsins og, eins og ráðherra kom inn á, NATO, tvíhliða samninginn við Bandaríkin, NORDEFCO og síðan JEF, sem ég held reyndar, og tek undir með ráðherra, að sé að verða sífellt mikilvægari vettvangur í öryggis- og varnarmálum þjóðarinnar og ég trúi því að það sem snýr að því muni þróast hratt á næstu árum. Það er gott að fá þessa rammagrein á bls. 55–56 um 1,5%, þetta nær ágætlega utan um þau mál sem snúa að þessu. Þar er komið inn á framvinduskýrsluna sem á að skila núna eftir réttan mánuð, 15. maí 2026. Ég tek undir sjónarmið þingmanna sem hafa talað hér í kvöld um að auðvitað vantar töluvert upp á á tíma þessarar fjármálaáætlunar — ef þessi markmið eiga að nást 2035, ef þróunin á að vera að vinna sig upp í að það fari 1,5% af landsframleiðslu í ríkisfjármálunum til varnar- og öryggismála, þá þarf þetta að skýrast. Vonandi fer það að koma og ég reikna með að það skýrist að einhverju leyti eftir mánuð og hæstv. ráðherra málaflokksins, utanríkisráðherra, geti þá kannski greint þinginu frá því um hvað þetta snýst.

Hins vegar vil ég vekja athygli sérstaklega á einu sem ég tek eftir í þessari rammagrein sem hefur ekki verið rætt hér í kvöld og ekki mikið almennt, held ég, í samfélaginu. Hér er talað um að 1,5% viðmiðið nái til hins opinbera í heild; ríkis, sveitarfélaga og opinberra fyrirtækja í þeirra eigu, þannig að sveitarfélögin eru hér undir. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur það samtal þróast með einhverjum hætti eða farið fram varðandi sveitarfélögin? Síðan eru það opinberu fyrirtækin. Er það samtal hafið sem snýr að þessu 1,5% til að efla áfallaþol og viðnámsþrótt samfélagsins?