fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því í ræðu hæstv. ráðherra um utanríkismálin að hún nefndi að það væri mikilvægt að Ísland væri, svo ég vitni beint í það, með leyfi forseta, trúverðugur bandamaður. Þetta er frasi sem ég hygg að hæstv. ráðherra taki upp eftir forvera sínum, hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, sem talaði mjög oft um að Ísland þyrfti að vera verðugur bandamaður í þessu samstarfi. Mér finnst þetta tungutak í rauninni ekki sæmandi ráðherrum, að tala þannig um hlut Íslands í alþjóðasamstarfi. Það er svona látið að því liggja að það sé hætta á því að Ísland verði ekki trúverðugt bandalagsríki eða bandamaður í alþjóðlegu samstarfi. Ég hef alveg ágæta reynslu af alþjóðasamstarfi og hef aldrei orðið vör við það — ég held að ég geti fullyrt að það hvarfli ekki að nokkru einasta ríki í Evrópusambandinu eða víðar eða forsvarsmönnum þessara ríkja að hafa uppi einhverjar ásakanir um að það væri hætta á því að Ísland væri ekki trúverðugur bandamaður. Ég vil bara nota þetta tækifæri til að höggva í þessa síbylju sem dynur hér af því ég tek eftir því að margir aðrir hv. þingmenn taka þetta orðalag upp eftir ráðherranum.
Mig langar að spyrja — tíminn líður hratt og ég er varla með spurningu hérna — varðandi útgjöldin eins og aðrir hafa verið að gera hér til varnarmála, t.d. löggæslumála. Ég veit að það er vel hægt að telja fram þessi framlög Íslendinga til löggæslunnar. (Forseti hringir.) Hér er verið að auka fjárframlög til löggæslunnar. Mögulega mætti gera það meira. Hafa fjárveitingar til löggæslu sérstaklega verið skoðaðar í þessu sambandi þegar verið er að taka til fjárframlög til þessara varnartengdu verkefna?