fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég ætla kannski að byrja á orðum hv. þingmanns varðandi það að vera trúverðugur bandamaður og að það sé ekki verðugt og gott tungutak. Ég verð nú að segja að það er mér ekkert endilega bara heiður að fylgja eftir því sem minn forveri í starfi sagði, af því að iðulega var það sem hún sagði sett fram af íhugun og hún hafði rýnt hlutina. Ég vil einfaldlega segja að það er ástæða fyrir því, að mínu mati, að við tölum um það að vera verðugur bandamaður; það er einfaldlega þessi þrýstingur á okkur Íslendinga. Umhverfið er það breytt að það er ekki lengur þessi afsláttur að það sé bara litið á okkur sem þjóð sem er ekki með neinn her og við gerum ekkert annað. Þegar við erum að tala um að vera trúverðugur bandamaður þá skiptir máli að hver sem kemur hingað í heimsókn, hvort sem það er Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, hershöfðingjar, sutanríkisráðherrar, varnarmálaráðherrar, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins — sem fór í taugarnar á Miðflokknum á sínum tíma að skyldi leyfa sér að koma hingað — allt þetta fólk, þegar það kemur, og kemur m.a. til Keflavíkur, sér það sem við erum að gera; við erum að uppfylla okkar skuldbindingar og við erum að sýna fram á að við erum einmitt verðugur bandamaður í samfélagi þessara bandalagsþjóða og -vina okkar. Við erum að gera okkar þótt okkar framlög peningalega séu minni en annarra og þess vegna skiptir þessi umræða um 1,5% miklu máli.
Varðandi greiningarvinnuna þá felst hún m.a. í því að leggja mat á að hvaða leyti framkvæmd varnaráætlunar eflir varnarviðbúnað bandalagsins og eykur áfallaþol. Það kemur m.a. inn í það hvernig við skoðum löggæsluverkefni dómsmálaráðuneytisins og ríkislögreglustjóra. Það er verið að vinna þetta í þéttu samstarfi við aðrar íslenskar stofnanir sem vinna að varnartengdum verkefnum. (Forseti hringir.) En það er einmitt verið að skoða framlög til löggæslumála, hvernig og hvort þau geti fallið undir þetta 1,5%. Viðmiðin eru frá NATO, þau eru ekki heimatilbúin. Viðmiðin eru frá NATO og við ætlum að standa okkur.