fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra gefur hér í með tungutakinu um verðugan bandamann og blandar inn í Mark Rutte og félögum sem koma í heimsókn og lætur að því liggja að það myndi hvarfla að þessu ágæta fólki sem kemur hingað, þessum vinum okkar, að það standi þeim eitthvað nærri í huga að Ísland gæti mögulega einhvern tímann orðið ekki verðugur bandamaður. Ég held að það sé svo fjarri þessum vinum okkar sem heimsækja Ísland að fara að halda því fram í rauninni alveg sama hvert fjárframlag Íslands væri til varnartengdra verkefna. Ég sé ekki fyrir mér að menn myndu halda því fram að Ísland væri ekki verðugur bandamaður þótt það næði ekki 1,5% framlagi eins og menn vilja reikna það og menn munu stilla það af með einhverjum hætti. Ég er ekki að halda því fram að við eigum ekki að leggja fram aukið fé til varnartengdra verkefna. Ég er bara að benda á að þessi umræða er ekki sæmandi og hún er líka villandi. Ekkert ríki í NATO uppfyllir þau viðmið sem NATO hefur sett fram, ekkert ríki, hvorki Póllandi né Litáen, þótt þau fari nærri því með 4% og 4,5% framlag. Það uppfyllir ekkert NATO-ríki þessi viðmið sem NATO sjálft hefur sett fram um framlögin. Bretland er með hvað, 2,4%. Ég vil biðja menn um að stilla sig aðeins í þessari umræðu.
Ég vil hins vegar spyrja hæstv. ráðherra, af því það er ekkert nefnt hér, um kostnað við mögulegar viðræður við Evrópusambandið, fari svo að þjóðin verði svo ólukkuleg að greiða því atkvæði að menn fari að eyða tíma og orku í það að ræða við Evrópusambandið um aðild eða fara í aðildarviðræður. Hver er kostnaðurinn? Eða hefur ráðuneytið ekki nú þegar, sem hefði verið fullt tilefni til því að atkvæðagreiðslan er sett á þessu ári og fjármálaáætlun er lögð fram hérna núna, (Forseti hringir.) greint ítarlega frá þeim fyrirhugaða kostnaði sem slíkar viðræður hafa í för með sér? Þá á ég við kostnað við ráðgjafa, beinan kostnað og alls kyns óbeinan kostnað sem óumdeilt er að mun falla til í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu á tíma þegar viðræðurnar standa yfir.