fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina og ég veit að um marga málaflokka er að ræða. Ég ætla að spyrja um málefnasvið 07, Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar. Þar verð ég að viðurkenna að ég hef eiginlega samúð með hæstv. ráðherra því að þetta er það málefnasvið sem ég hefði haldið að við ættum að sammælast um að skipti okkur miklu máli til framtíðar. Nýsköpunin sem er í rauninni orðin sérstök stoð í íslensku atvinnulífi. Auðvitað á að vera nýsköpun alls staðar en þessi þekkingargeiri hefur haldið okkur á floti og gert það að verkum að við erum ekki bara auðlindadrifið hagkerfi eins og við vorum áður. Þarna eru tækifærin. Hér eru framlögin að dragast saman þannig að það fjármagn sem síðasta ríkisstjórn varði í þetta málefnasvið, bæði á árinu 2024 og með heimildum á árinu 2025, þeirri upphæð verður ekki náð fyrr en árið 2031 þegar þessi ríkisstjórn verður vonandi löngu komin frá völdum. Ég verð að spyrja hæstv. ráðherra: Hyggst hæstv. ráðherra ekki beita sér fyrir breytingu á því og fá aukin framlög í þennan mikilvæga málaflokk? Er hæstv. ráðherra sáttur við það markmið sem er sett fram á blaðsíðu 128? Þar segir, með leyfi forseta: „Fjármagn sem samfélagið ver í rannsóknir og þróun nemi 3,5% af vergri landsframleiðslu á árinu 2035 og nýsköpunardrifið þekkingarsamfélag stuðli að því að bæta heilsu, lífsgæði, hagsæld og vernd umhverfis.“
Þetta fræga 3,5% markmið var markmið hjá Evrópusambandinu og Evrópuþjóðum þegar ég var að vinna í þessu fyrir 20 árum. (Forseti hringir.) Við vorum komin nálægt 3%. Er hæstv. ráðherra sáttur við það sem hér liggur fyrir í þessum málaflokki?